fbpx
Laugardagur 30.nóvember 2024
Fókus

11 húsráð sem allir ættu að þekkja

Vissir þú að það er leikur einn að fjarlægja svartar rákir eftir skó á parketi

Kristín Clausen
Laugardaginn 8. október 2016 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Góð húsráð eru ómissandi í amstri hversdagsins. En hver hefur ekki lent í því að standa ráðþrota yfir brenndri sósu eða bölva svörtum rákum á parketinu. Hér að neðan má finna 11 sniðug ráð úr ólíkum áttum sem gætu auðveldað heimilisþrifin sem og eldhúsverkin.

Þetta ættir þú að leggja á minnið

Salatblað er lausnin

Þegar þú ert með taco í matinn byrjaðu þá á því að leggja salatblað inn í taco-skelina. Ef hún brotnar þá fer innihaldið ekki út um allt heldur helst í salatblaðinu.

Sykur í brunna sósu

Ef sósan brennur við í pottinum þá er óþarfi að gefast upp. Þú getur hellt sósunni yfir í annan pott og haldið áfram að sjóða hana þar. Þegar því er lokið þá ættir þú að bæta smá sykri út í sósuna. Hann kemur í veg fyrir að þú finnir brunabragð.

Olía fyrir skurð

Olíuborinn eða með gúmmíhanska?
Það getur verið mjög sárt að komast í beina snertingu við chili-fræ Olíuborinn eða með gúmmíhanska?

Ef þú ert ekki með hanska við höndina þegar þú skerð chili-pipar þá er mjög góð hugmynd að löðra hendurnar í olíu áður en þú byrjar að skera.

Svona mýkirðu smjör

Ef þú þarft að mýkja smjör, hratt og auðveldlega, þá er sniðugt að setja það inn í smjörpappír og fletja smjörið rólega út með bökunarkefli.

Poki verndar símann

Þegar þú ert á leiðinni á ströndina er sniðugt að setja símann í lítinn glæran plastpoka. Það heldur sandinum fjarri og þú getur notað símann á meðan hann er í pokanum.

Tennisboltinn gerir kraftaverk

Vissir þú að það er leikur einn að fjarlægja svartar rákir eftir skó á parketi með því að strjúka yfir þær með tennisbolta?


Sléttujárn/straujárn

Þegar þú straujar þá er vel hægt að nota sléttujárn til að ná betur á erfiðustu staðina. Til dæmis í kringum tölur og kraga.

Glasið magnar hljóðið

Ef þig langar að hlusta á tónlist í símanum en ert ekki með hátalara, prófaðu þá að setja símann ofan í glas eða skál og heyrðu hvað gerist.

Þurrt handklæði

Þessi er greinilega með þvottamál heimilisins á hreinu.
Það sparar orku og tíma að setja þurrt handklæði með blauta þvottinum í þurrkarann Þessi er greinilega með þvottamál heimilisins á hreinu.

Sparaðu tíma, orku og peninga með því að setja þurrt handklæði inn í þurrkarann í hvert skipti sem þú þurrkar þvott.

Frysta avókadó

Vissir þú að það er vel hægt að frysta avókadó. Þegar þú ert búin að nota það sem þú þarft af avókadóinu, settu það í frystipoka og inn í frysti.

Leysir smjör af hólmi

Og meira um avókadó. Þú getur notað það í staðinn fyrir smjör í margar uppskriftir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Varpa ljósi á síðustu augnablik Liam Payne – Pantaði vændiskonur og fíkniefni

Varpa ljósi á síðustu augnablik Liam Payne – Pantaði vændiskonur og fíkniefni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segist vera hársbreidd frá því að hefja kynferðislegt samband með systur sinni

Segist vera hársbreidd frá því að hefja kynferðislegt samband með systur sinni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fór að leita að norðurljósum á Íslandi en fann nokkuð enn sjaldséðara

Fór að leita að norðurljósum á Íslandi en fann nokkuð enn sjaldséðara
Fókus
Fyrir 3 dögum

Opinbera kyn fyrsta barnabarns auðkýfingsins Róberts Wessman

Opinbera kyn fyrsta barnabarns auðkýfingsins Róberts Wessman