Unnur Steinsson býr í Stykkishólmi ásamt Ásgeiri Ásgeirssyni eiginmanni sínum og Sóleyju, átta ára dóttur þeirra. Unnur prýðir forsíðu MAN sem kemur út á morgun. Þar tjáir hún sig um straumhvörf í lífi sínu, móðurmissi, skilnað og hvernig sé að byggja upp samband eftir fertugt.
Unnur er landsþekkt en hún var kjörin fegurðardrottning Íslands árið 1983 og var á meðal fimm efstu í Miss world. Þá hefur unnið við dagskrárgerð og vann náið með Hemma Gunn.
„Ég er alveg óskaplega ánægð,“ sagði Unnur Steinsson, þegar DV ræddi við hana á þeim tíma sem hún var krýnd fegurðardrottning Íslands. Aðspurð hvernig henni hefði liðið þegar úrslitastundin nálgaðist svaraði Unnur:
„Ég var auðvitað orðin mjög spennt og hafði meira að segja enga lyst á þessum girnilega mat sem var á borðum. Satt að segja borðaði ég bara salatið.“
Þekkt er að þegar Unnur Steinsson varð á meðal fimm efstu í Miss world var hún komin þrjá mánuði á leið með Unni Birnu sem seinna átti eftir að feta í fótspor móður sinnar og taka þátt í fegurðarsamkeppnum.
Í viðtalinu við MAN kemur Unnur Steinsson víða við.
„Ég og fyrrum eiginmaður minn kynntumst ung að árum eða um tvítugt og ég held að sambönd þróist öðruvísi þegar þau hefjast seinna. Ég var búin að eiga þrjú börn fyrir þrítugt og hélt ég væri þá bara hætt. Þegar ég kynntist seinni manninum mínum var ég búin að þessu öllu, þá var ég farin að hugsa um sjálfa mig og ég held að ég og minn fyrrverandi höfum aldrei náð því.“
Þá segir hún á öðrum stað:
„Ég held það sé ekki til neitt sem heitir að skilja alveg í góðu. Það er líka erfitt að skilja við fjölskyldu hins aðilans, ekki síst þar sem við byrjuðum saman svo ung.“
Þá segir Unnur frá því þegar hún varð óvænt barnshafandi 44 ára:
„Ég var skyndilega 45 ára með eins árs gamalt barn og vinirnir voru að skreppa hingað og þangað og nutu frelsisins. Ég viðurkenni að ég átti svolítið erfitt með þessi umskipti. Allt í einu var ég föst heima eftir vinnu, og þótt maður aðlagist öllu er maður vissulega betur til þess fallinn að standa í þessu þegar maður er yngri.“