Vigdís hefur ekki fundið þann eina rétta
Er eitthvert pláss í lífinu fyrir áhugamál?
„Ég keypti íbúð í Hlíðunum í fyrra með frábærum garði. Fyrir austan fjall rækta ég matjurtir með Maríu systur minni. Það hefur nú ekki verið mikið um frístundir. Ég hlakka til að hætta því ég get farið að sinna fjölskyldu og vinum miklu meira en að undanförnu. Fyrstu vikurnar mun ég hvíla mig. Svo finnst mér dásamlegt að ferðast og er nýlega orðin mikill Ítalíuaðdáandi.“
Hvað með ástalífið, ertu eitthvað að fara á stefnumót?
„Ég var gift en skildi 2002. Síðan þá hef ég verið ein – ekki fundið þann eina rétta. Ég var einu sinni í saumaklúbbi með ótrúlega hressum vinkonum sem skráðu mig á Tinder og nokkrum mínútum síðar var það komið í fjölmiðla. Ég entist kannski 10 mínútur þar. Ég verð bara að fara að ganga í að finna mér kærasta. Ég held að það væri kostur að hann væri ekki framsóknarmaður, því ég mundi helst ekki vilja ræða þau mál við elskhugann. Húmor skiptir öllu og að maðurinn sé vel gáfum gæddur, annað er opið. Það er orðið ansi langt síðan ég var skotin síðast!“