Fyrsta sumarvinna sjónvarpskonunnar Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur var að passa Arnór Ingva Traustason, landsliðsmann í knattspyrnu. Ragnhildur birti færslu á Facebook-síðu sinni á fimmtudag þar sem hún greindi frá þessu og að 22 ár væru liðin síðan hún gaf honum stappaðan banana og lék við hann í boltaleik. Barnapían fyrrverandi, sem er 35 ára, birti mynd af sér og markaskoraranum gegn Austurríki en hann er fæddur 1993.