Góðir gestir heimsóttu Hildi Yeoman og félaga í Lækningaminjasafninu
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman opnaði sýningu síðastliðinn föstudag, ásamt hópi listamanna. Þar sýnir hún ný munstur og flíkur, en á opnuninni var einnig leikin tónlist og sýnd vídeóverk og ljósmyndir.
Góðir gestir lögðu leið sína í Lækningaminjasafnið á Seltjarnarnesi, en náttúran á Nesinu var skemmtileg umgjörð um hönnun Hildar sem sækir þangað mikinn innblástur.