Knattspyrnustjórinn David Moyes var staddur á landinu í vikunni þar sem hann tók þátt í ráðstefnunni Viðskipti og fótbolti í Hörpu á miðvikudag. Moyes gaf sér tíma til að líta á mannlífið en til hans spurðist á Slippbarnum á þriðjudagskvöld.
Þar sat Skotinn einn og yfirgefinn drykklanga stund og fékk allt það næði sem frægt fólk fær kannski ekki alltaf. Sjónarvottar höfðu þó á orði að hann hefði líklega ekkert haft á móti smáspjalli, enda hafi karlinn virst fremur einmana.