Magnaður flutningur á laginu Believe með Cher
Hin fjórtán ára gamla Jasmine Elcock mætti í áheyrnarprufu fyrir sjónvarpsþáttinn Britain’s Got Talent tveimur dögum eftir afmælið sitt. Óhætt er að segja að þessi unga og upprennandi stjarna hafi unnið hug og hjörtu áhorfenda og dómnefndarinnar með einstökum sönghæfileikum sínum.
Við flutning lagsins mátti sjá dómarinn Aleshu Dixon fella tár og berjast við tilfinningar sínar. Það sama má segja um kynna þáttarins, Ant og Dec, sem sáust hlaupa inn á sviðið eftir flutninginn og þrýsta á gullna hnappinn, sem gefur til kynna að hún komist áfram í þættinum. Gleðin leyndi sér ekki hjá ungu stúlkunni þegar hún sá í hvað stefndi.
Í áheyrnarprufunni tók hún eigin útgáfu af laginu Believe sem söngkonan Cher gerði frægt um árið.
Sjáðu magnaðan flutning Jasmine hér að neðan:
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=XykTxCO6dzA?rel=0&w=640&h=360]