Níu hæfileikaríkar konur sýndu verk sín í Listasafni Reykjavíkur
Á sumardaginn fyrsta sýndu níu útskriftarnemar í fatahönnun við Listaháskóla Íslands lokaverkefni sín í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Nemendurnir sem eru að útskrifast í vor eru Björg Gunnarsdóttir, Guðrún Helga Kristjánsdóttir, Júlíana Ósk Hafberg, Karún Herborg Guðmundsdóttir, Manuela Ósk Harðardóttir, Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir, Sóley Jóhannsdóttir, Steinunn Eyja Jóhannsdóttir og Una Valrún.
Hér gefur að líta sköpunarverk þessara hæfileikaríku hönnuða. Til hamingju!