fbpx
Fimmtudagur 05.september 2024
Fókus

Þau þjást af sviðsskrekk

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 24. apríl 2016 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki tekið út með sældinni að vilja vera í sviðsljósinu en hafa ekki taugar í það. Þessi hafa öll þurft að sigrast á sviðsskrekk.

Tónlistarkonan Sia felur andlit sitt á alla þá vegu sem hún getur þegar hún kemur fram opinberlega. Hún segir ástæðuna vera þá að hún vill vera tónlistarkona sem semur lög, syngur og skemmtir en hún vill ekki vera þekkt. Hún segist vilja eiga líf utan sviðsljóssins og er þetta tilraun til þess. Söngkonan hefur þó ekki alltaf hulið andlit sitt og kom á árum áður fram undir nafni og mynd. Hún segir að hún þjáist að auki af miklum sviðsskrekk og að þessi feluleikur auðveldi henni að stíga á svið.
Sia Tónlistarkonan Sia felur andlit sitt á alla þá vegu sem hún getur þegar hún kemur fram opinberlega. Hún segir ástæðuna vera þá að hún vill vera tónlistarkona sem semur lög, syngur og skemmtir en hún vill ekki vera þekkt. Hún segist vilja eiga líf utan sviðsljóssins og er þetta tilraun til þess. Söngkonan hefur þó ekki alltaf hulið andlit sitt og kom á árum áður fram undir nafni og mynd. Hún segir að hún þjáist að auki af miklum sviðsskrekk og að þessi feluleikur auðveldi henni að stíga á svið.

Mynd: EPA

Það kann að virðast ótrúlegt en söngkonan Lady Gaga segist verða mjög taugaóstyrk á sviði, bæði þegar hún heldur tónleika og á verðlaunahátíðum.
Lady Gaga Það kann að virðast ótrúlegt en söngkonan Lady Gaga segist verða mjög taugaóstyrk á sviði, bæði þegar hún heldur tónleika og á verðlaunahátíðum.

Mynd: EPA

Allt sem Adele gerir virðist verða að gulli og hún þykir ein besta og efnilegasta söngkona okkar tíma. Það er uppselt á alla tónleika hennar, en það stappar nærri kraftaverki að samstarfsfólk hennar komi henni á svið fyrir hverja tónleika. Hún segist gráta, kasta upp og grátbiðja þau um að leyfa henni að sleppa tónleikunum. Þegar hún er svo komin á sviðið leikur allt í höndunum á henni, en hún segist dauðhrædd við aðdáendur sína á sama tíma og hún elski þá.
Adele Allt sem Adele gerir virðist verða að gulli og hún þykir ein besta og efnilegasta söngkona okkar tíma. Það er uppselt á alla tónleika hennar, en það stappar nærri kraftaverki að samstarfsfólk hennar komi henni á svið fyrir hverja tónleika. Hún segist gráta, kasta upp og grátbiðja þau um að leyfa henni að sleppa tónleikunum. Þegar hún er svo komin á sviðið leikur allt í höndunum á henni, en hún segist dauðhrædd við aðdáendur sína á sama tíma og hún elski þá.

Mynd: EPA

Árið 1967 hlekktist Barbra Streisand á í texta á tónleikum sem haldnir voru í Central Park í New York. Í kjölfarið kom hún ekki fram opinberlega sem söngkona á sviði að neinu ráði fyrr en 1994. Hún gleymdi textanum á sviðinu. Hún segist hafa verið undir miklu álagi á þessum tíma, en ákvað að halda áfram að leika.
Barbra Streisand Árið 1967 hlekktist Barbra Streisand á í texta á tónleikum sem haldnir voru í Central Park í New York. Í kjölfarið kom hún ekki fram opinberlega sem söngkona á sviði að neinu ráði fyrr en 1994. Hún gleymdi textanum á sviðinu. Hún segist hafa verið undir miklu álagi á þessum tíma, en ákvað að halda áfram að leika.

Mynd: EPA

Frægðarsól Ariana Grande rís hratt og örugglega, en þrátt fyrir það segist hún vera mjög óörugg á sviði, sérstaklega þegar kemur að því að koma fram á stórum verðlaunahátíðum eða þegar hún hefur sjálf verið verðlaunuð.
Ariana Grande Frægðarsól Ariana Grande rís hratt og örugglega, en þrátt fyrir það segist hún vera mjög óörugg á sviði, sérstaklega þegar kemur að því að koma fram á stórum verðlaunahátíðum eða þegar hún hefur sjálf verið verðlaunuð.

Mynd: EPA

Hún hefur verið í sviðsljósinu frá barnsaldri, en leik- og söngkonan Hayden Panettiere segist aldrei venjast því. Hún leikur nú kántrísöngkonu í sjónvarpsþáttunum Nashville og segist verða mjög óörugg þegar henni er ætlað að syngja fyrir framan stóra hópa.
Hayden Panettiere Hún hefur verið í sviðsljósinu frá barnsaldri, en leik- og söngkonan Hayden Panettiere segist aldrei venjast því. Hún leikur nú kántrísöngkonu í sjónvarpsþáttunum Nashville og segist verða mjög óörugg þegar henni er ætlað að syngja fyrir framan stóra hópa.

Mynd: EPA

Hún hefur fyrir löngu sýnt og sannað að hún er eitt stærsta nafn okkar tíma, en á sínum tíma bjó athafnakonan Beyoncé sér til hliðarsjálf – Sasha Fierce. Hún brá sér svo í gervi hennar þegar athyglin eða sviðsskrekkurinn fór að angra hana. Sasha varð til þegar hún vann að þriðju plötu sinni, sem hét einmitt I am … Sasha Fierce.
Beyoncé Hún hefur fyrir löngu sýnt og sannað að hún er eitt stærsta nafn okkar tíma, en á sínum tíma bjó athafnakonan Beyoncé sér til hliðarsjálf – Sasha Fierce. Hún brá sér svo í gervi hennar þegar athyglin eða sviðsskrekkurinn fór að angra hana. Sasha varð til þegar hún vann að þriðju plötu sinni, sem hét einmitt I am … Sasha Fierce.

Mynd: EPA

Leikkonan Amanda Seyfried segist þurfa að drekka í sig hugrekki fyrir spjallþætti. Hún þarf reglulega að heimsækja hina ýmsu sjónvarps- og spjallþætti og segir að það sé alltaf jafn óþægilegt. Hún segir að nokkrir gráir hjálpi sér mikið en viðurkennir að það sé ekki til eftirbreytni.
Amanda Seyfried Leikkonan Amanda Seyfried segist þurfa að drekka í sig hugrekki fyrir spjallþætti. Hún þarf reglulega að heimsækja hina ýmsu sjónvarps- og spjallþætti og segir að það sé alltaf jafn óþægilegt. Hún segir að nokkrir gráir hjálpi sér mikið en viðurkennir að það sé ekki til eftirbreytni.

Mynd: EPA

Sem hluti af hipphopp-tvíeykinu OutKast er Andre 3000 sérstaklega vanur að standa á sviði og koma fram, en honum fannst skyndileg frægð OutKast óþægileg og dró sig til hliðar vegna þess.
Andre 3000 Sem hluti af hipphopp-tvíeykinu OutKast er Andre 3000 sérstaklega vanur að standa á sviði og koma fram, en honum fannst skyndileg frægð OutKast óþægileg og dró sig til hliðar vegna þess.

Mynd: EPA

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér
Fókus
Í gær

Bensi og Sunneva hugsa sér til hreyfings

Bensi og Sunneva hugsa sér til hreyfings
Fókus
Í gær

Hinn fimmtán ára Oddur Bjarni leggur til SKVÓP matseðil í grunnskólum landsins – Hefur sent forsetanum bréf

Hinn fimmtán ára Oddur Bjarni leggur til SKVÓP matseðil í grunnskólum landsins – Hefur sent forsetanum bréf
Fókus
Í gær

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Móðir sem fór í Disney World en skildi börnin eftir heima skiptir fólki í tvö lið

Móðir sem fór í Disney World en skildi börnin eftir heima skiptir fólki í tvö lið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – Kroppamyndataka á hótelherbergi og skvísufrumsýning

Vikan á Instagram – Kroppamyndataka á hótelherbergi og skvísufrumsýning
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég myndi ekki vilja að dóttir mín væri í sambandi með manni eins og mér“

„Ég myndi ekki vilja að dóttir mín væri í sambandi með manni eins og mér“