Kalt á milli þeirra í Íslandsferð
Bandaríski slúðurfréttamiðillinn Radar Online greinir frá því að í Íslandsferð stjórnuparsins Kim Kardashian og Kanye West hafi andað köldu þeirra á milli.
Að sögn vefjarins vildi Kanye eyða eins miklum tíma og hann mögulega gat með Kim meðan á ferðinni stóð og segir heimildarmaður að Kanye hefði viljað „eyða hverri sekúndu með henni“.
Greint hefur verið frá því að parið hafi upplifað erfiðleika í sambandi sínu og þau hafi líklega aldrei verið nær því að skilja en einmitt nú. Á myndum og myndböndum sem birtust á Snapchat og Instagram virtist parið þó njóta Íslandsvalarinnar til hins ítrasta.
Enn fremur greindi vefsíðan frá því í gær, að Kanye West sé spenntur fyrir því að stækka fjölskylduna og eignast fleiri börn. Kim og Kanye eiga tvö börn saman. Hann er sagður hafa spurt Kim síðustu tíu daga hvort hún vilji ekki eignast fleiri börn en Kim hafi efasemdir um það.. Fyrir eiga þau börnin North West, sem er tveggja ára gömul og einnig hinn fjögurra mánaða gamla Saint West.