. „Ég vil skála fyrir öllum konum“ – Konur ala okkur upp, fæða okkur, klæða okkur
Grínhópurinn Áttan hefur birt myndskeið á Facebook sem tileinkað er konudeginum. Þar senda fjölmargir íslenskir karlmenn kveðju til íslenskra kvenna. Þar má meðal annars sjá: Snorra Björnsson, Fannar Sveinsson, Erp Eyvindarson, Ívar Guðmundsson, Gunnar Sigurðsson, Arnar Grant, Steinar Baldursson, Benedikt Valsson og Jón Arnór Pétursson.
„Mig langar að segja eitthvað frumlegt. Mér finnst enginn tilgangur með karlmönnum, mér kannski og bestu vini mínum. En aðrir karlmenn eru í raun viðbjóður,“ segir Erpur og bætir við: „Þegar maður er aumastur. Þegar maður er alveg búinn að vera andlega og líkamlega. Þá nennir þú ekki að liggja í skeið með skeggjuðum vini þínum.“
Arnar Grant segir konur vera undirstöðu alls lífs. „Ég vil skála fyrir öllum konum.“
Kveðja Benedikts Valssonar í Hraðfréttum hljómar svo: Konur eru einstaklega hæfileikaríkar, fallegar og eiga auðvelt með að tjá sig. Fannar félagi hans segir:
„Konur eru yndislegar. Konur ala okkur upp, fæða okkur, klæða okkur. Maður elskar konur. Konur eru allt. Allt það góða við heiminn eru konur.“
Ungur piltur, Jón Arnór endar myndskeiðið og segir einfaldlega: „Mér finnst konur æðislegar, því án ykkar væru ekki til börn. Til hamingju með konudaginn.“
(function(d, s, id) { var js, fjs = d.getElementsByTagName(s)[0]; if (d.getElementById(id)) return; js = d.createElement(s); js.id = id; js.src = „//connect.facebook.net/en_US/sdk.js#xfbml=1&version=v2.3“; fjs.parentNode.insertBefore(js, fjs);}(document, ‘script’, ‘facebook-jssdk’));
Konur, til hamningju með daginn ykkar!Deildu ef þú elskar konur.Snapchat: Attan_officialInstagram: Attan_official
Posted by Áttan on Sunday, February 21, 2016