Séð og heyrt segir Guðmund Andra skrifa „kerlingabækur“
Forsvarsmenn tímaritsins Séð og heyrt virðast hafa tekið það óstinnt upp að rithöfundurinn Guðmundur Andri Thorsson hafi kallað blaðið indælt „rakarastofublað“ í vikulegum pistli sínum í Fréttablaðinu á mánudag. Á vefsíðu tímaritsins er tekið til varna.
„Vissulega liggur tímaritið víða frammi til ánægjuauka fyrir marga og væri gott ef það sama gilti um bækur Guðmundar Andra sem eru vinsælastar meðal miðaldra kvenna og gætu þess vegna heitið kerlingabækur.“