Spennandi þættir sem gerast í litlu afskekktu þorpi í Þýskalandi. Börn hverfa og þegar lögreglan fer að rannsaka hvörfin kemur í ljós að nákvæmlega sömu atburðir gerðust fyrir 33 árum. Þessir þættir láta þig missa svefn.
Nú eru margir í árlegu janúarbindindi með tilheyrandi hreinsunarkúrum. Ef þú ert þeirra á meðal, en langar samt að smakka eitthvað sem í það minnsta líkist bjór, þá er þessi afbragðs drykkur frá BECKS líklegast sá besti sinnar tegundar. Fæst meðal annars í Fjarðarkaupum og 10-11 en ekki í Vínbúðum.
Að viðhalda góðri heilsu þarf ekki að kosta krónu og sama hvað þú gerir, ekki gera ekki neitt. Byrjaðu til dæmis bara á því að teygja þig á morgnana og svo nokkrum sinnum yfir daginn. Áhrifin munu fljótlega skila sér í meiri liðleika og betri líðan.
Flest erum við mjög háð Messenger-forritinu sem fylgir Facebook en vissir þú að Whats App er bæði öruggara og betra samskiptaforrit? Það er öryggiskóðað svo skilaboðin munu aldrei leka út og að auki getur þú eytt öllu sem þú sérð eftir að hafa skrifað, ekki bara í þínu eigin appi heldur hverfur það líka hjá þeim sem fengu skeytið! Hentugt.