Gjafabréf frá Ökukennslu 17.is verða sífellt vinsælli
Það hefur færst í vöxt hjá ungum stúlkum að gefa kærasta sínum vélhjólanám í jólagjöf, að sögn eigenda skólans Ökukennsla 17.is. Skólinn býður upp á gjafabréf af ýmsu tagi eftir efni og aðstæðum fólks. Sumir kaupa fullt ökunám handa til dæmis börnum sínum, en aðrir gefa til dæmis Ökuskóla 1, sem er vænn hluti af ökunáminu. Hafa má í huga að gjafabréfin úreldast ekki og því ekkert sem kemur í veg fyrir að þetta sé gefið fólki sem ekki hefur enn náð aldri til ökuréttinda.
Best er að panta gjafabréf eða fá nánari upplýsingar um þau með því að senda tölvupóst á netfangið 17@17.is.
En hvernig ökuskóli er Ökukennsla 17.is?
„Við höfum lagt ofuráherslu á gæði þjónustunnar og höfum fengið þau viðbrögð frá viðskiptavinum að þeir séu afar ánægðir með frábæra og hraða þjónustu. Þeir sem leita til okkar geta fengið allt á einum stað og við útvegum ökukennara um allt land sé eftir því óskað. Við vorum fyrsti ökuskólinn til að bjóða upp á að fá allan pakkann á einum stað. Þú færð Ökuskóla 1, 2 og 3, 15 ökutíma, próftökugjöld, kennslubókina og æfingaakstursmerkið – allt hjá okkur – og getur fengið að skipta kostnaðinum niður í allt að 12 greiðslur. Það er þægilegur kostur því þetta er nokkuð stór pakki fyrir fólk og mörgum finnst afar þægilegt að geta keypt allan pakkann á einum stað og greitt hann með raðgreiðslum.“
Þetta segir Sigurður Jónasson, eigandi Ökukennsla 17.is. Sigurður er ökukennari og lögreglumaður. Hann hefur margra ára reynslu af kennslu í ökuskólum og gerð kennsluefnis. Sigurður hefur einnig annast kennslu í umferðarfræði, til dæmis við Lögregluskóla ríkisins, og í ökukennaranámi á vegum Háskóla Íslands. Hann hefur um árabil verið einn af vinsælustu ökukennurum á höfuðborgarsvæðinu þar sem hann hefur kennt á bifreið, bifhjól og létt bifhjól.
Bjarnþóra M. Pálsdóttir starfar við skólann sem kennslufræðilegur ráðgjafi og styrkir faglega umgjörð hans enda hefur hún mikla reynslu af ráðgjöf og kennslu.
Ökukennsla 17.is veitir nám í fólksbílaakstri og bifhjólaakstri. Bóklega námið er allt á netinu en síðan eru öll próf tekin hjá Frumherja sem er framkvæmdaaðili ökuprófa á Íslandi. Ökunámið hjá Ökukennslu 17.is er öllum opið óháð búsetu og skólinn útvegar síðan ökukennara í héraði hvers nemanda sé óskað eftir því.
Fyrir utan gæði námsins veitir Ökukennsla 17.is ökunám á mjög hagstæðu verði:
„Skólinn okkar býður langbesta verðið hér á landi vegna þess að við greiðum ökukennurum ekki fyrir að senda okkur nemendur eins og flestir aðrir skólar gera. Við bjóðum hins vegar alla nemendur velkomna, sama hvar þeir eru og sama hjá hvaða kennara þeir eru. Allir eru velkomnir og fá betra verð.“
Ítarlegar upplýsingar um skólann og námið er að finna á heimasíðunni 17.is sem og á Facebook-síðu skólans.