fbpx
Fimmtudagur 19.desember 2024
Kynning

Félag lesblindra og merkileg starfsemi þess

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 15. desember 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Félagið var stofnað 26. mars árið 2003 þannig að við verðum 15 ára í mars á næsta ári. Þetta er grasrótarfélag sem stofnað var upp úr gömlu félagi frá 1994 sem hét Dyslexíu-félag Íslands. Skortur á fjármagni hamlaði starfseminni svo hún fjaraði út. Ég kom að stofnun félagsins 2003 og þá var uppi nokkur ágreiningur um heiti félagsins. Sjálfur vildi ég þá að félagið héti áfram Dyslexíu-félagið en í dag er ég mjög sáttur við nafnið Félag lesblindra því lesblinda er afar gegnsætt orð sem fólk skilur undir eins,“ segir Snævar Ívarsson, framkvæmdastjóri Félags lesblindra, sem er til húsa að Ármúla 7b.

Á stofnfundinum var einnig ákveðið að gerast aðili að Öryrkjabandalagi Íslands. Sú aðild hefur haldið lífi í félaginu og tryggt því nokkurn tekjustofn. Ákveðin tímamót urðu í starfseminni árið 2008 er Snævar ákvað að helga því alla starfskrafta sína. Eitt af mörgum verkefnum hans er að sækja styrki til félagsins úr tiltækum sjóðum og standa fyrir skólaheimsóknum:

„Meðal annars heimsækjum við 8. bekk grunnskóla þar sem við fræðum öll börnin um lesblindu. Það stuðlar að því að börn með lesblindu fá aukinn skilning hjá jafnöldrum sínum sem ekki eru lesblindir,“ segir Snævar.

„Við komum að lesblindu á allan mögulegan hátt. Við gætum hlutleysis og veljum ekki eina aðferð sem á að gilda fyrir allan fjöldann heldur kynnum við hlutlaust þær aðferðir gegn vandanum sem eru til, útskýrum hvernig þær ganga fyrir sig, hvers megi vænta og svo framvegis. Sem félag erum við að benda á lausnir sem við teljum að virki fyrir fjöldann í gegnum tæki eins og tölvur og síma. Við höfum árum saman verið með námskeið fyrir fullorðið fólk með lesblindu í gegnum endurmenntunarstöðvar víða um land. Einnig leiðbeinum við kennurum til þess að nýta sér ýmsa námstækni og tæki. Svo höfum við hitt lesblinda nemendur sem eru að undirbúa sig fyrir framhaldsskóla. Auk þess höfum við haldið erindi í ýmsum framhaldsskólum,“ segir Snævar um víðtæka starfsemi félagsins.

Félagið veitir lesblindum einstaklingsbundna þjónustu: „Félagsmenn geta komið með tækin sín til okkar og fengið uppsetningu á lestrarbúnaði í tækjunum. Allt sem þú getur valið með músarbendlinum er hægt að hlusta á. Android-símar eru síðan þannig að hægt er að tala við tækið og það skrifar fyrir þig, en það gildir ekki fyrir Iphone-síma. Hægt er að taka mynd af blaðsíðunni og hlusta á hana. Við erum með önnur tæki, litla handhæga skanna, sem hægt er að draga inn í nokkrar blaðsíður og tengja við tölvu.“

Enn fremur beitir félagið sér fyrir því að námsbækur séu annaðhvort til á stafrænu formi eða sem hljóðbækur.
Snævar kveðst telja að almennt séu skólar í dag betur vakandi fyrir mögulegum tilfellum lesblindu en áður enda hafi ákvæði um slíkt verið bundin í lög. „Hins vegar tökum við ekki að okkur greiningar en bendum á sérfræðinga sem annast þær – við erum einfaldlega reiðubúin til aðstoðar við þá sem þurfa hjálp með textann sinn,“ segir Snævar.

Það kostar ekkert að vera félagi í Félagi lesblindra en öllum félögum yfir 23 ára eru sendir valkvæðir greiðsluseðlar, 2.500 kr. á ári, til að auðvelda fólki að styðja félagið. „Við miðum við þennan aldur vegna þess að þá eru flestir orðnir virkir á vinnumarkaðnum,“ segir Snævar.

Að sjálfsögðu er félagið alltaf opið fyrir stuðningi þeirra sem vilja styðja við starfsemi þess og til dæmis er núna í gangi jólahappdrætti félagsins sem getur orðið því drjúg tekjulind. Nánari upplýsingar um það má fá inni á síðunni lesblindir.is en auk þess er þar að finna mikinn fróðleik um lesblindu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Pútín niðurlægður

Nýlegt

Kynning
14.05.2024

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla

Vodafone gerir tímamótasamning um internettengingar í bíla
Kynning
09.05.2024

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn

UAK 10 ára – Ráðstefna á laugardaginn
Kynning
27.03.2024

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 

Dreymir þig um lúxussiglingu um fallegustu eyjur Króatíu? – Gerðu drauminn að veruleika 
Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
KynningMatur
22.12.2023

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb

Skúbblerone er nýr hátíðarís hjá Skúbb
Kynning
06.11.2023

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum

Æfinga eða keppnisferð íþróttafélaga í útlöndum
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“