fbpx
Miðvikudagur 26.febrúar 2025
Kynning

Jólagjöf tónlistarmannsins

Kynning

Hljóðfærahúsið, Síðumúla 20

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 11. desember 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum að vinna með heildarlausnir hér í Hljóðfærahúsinu, hér geturðu fengið allt fyrir tónlistarmanninn og þann sem vill verða tónlistarmaður. Draumurinn rætist hér,“ segir Arnar Þór Gíslason í Hljóðfærahúsinu. Verslunin var opnuð árið 1916 og fagnaði því aldarafmæli í fyrra. Þrátt fyrir þennan háa aldur er Hljóðfærahúsið afar nútímaleg verslun sem býður það nýjasta og besta í hljóðfærum og tónlistartengdum margmiðlunarbúnaði sem náð hefur mikilli útbreiðslu undanfarin ár og er í stöðugri þróun.

„Kassagítar og rafmagnspíanó eru alltaf vinsælustu jólagjafirnar, ásamt rafgítörum og rafbössum,“ segir Arnar en sem dæmi um spennandi nýjungar nefnir hann Hifi-hátalara og streymistæki frá Naim Audio og Focal-hátalara. „Við erum með herbergi hér fyrir streymistæki þar sem fólk getur prófað að streyma tónlistinni beint úr símanum sínum,“ segir Arnar.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

„Þekktustu merkin eru Yamaha í hljómborðum, trommusettum, gítörum og hljóðkerfinu; Fender í gítörum og mögnurum, og Shure er leiðandi í hljóðnemum og heyrnartólum.“

Viðskiptavinahópurinn er fjölbreyttur: „Hingað kemur þekkt tónlistarfólk og alls konar annað tónlistarfólk því það leynist tónlistarmaður í hverri fjölskyldu og allir hafa áhuga á tónlist.“

Verð á hljóðfærum er gott um þessar mundir vegna hagstæðrar gengisþróunar, sem eykur enn möguleikana á spennandi jólagjöfum úr Hljóðfærahúsinu. Í boði eru gjafabréf fyrir hvaða upphæð sem er sem gilda fyrir hvaða vörur sem er í versluninni.

Stafrænt stúdíó fyrir nokkra tugi þúsunda

„Fyrir nokkra tugi þúsunda getur fólk fengið búnað sem dugar til að taka upp í sambærilegum gæðum og voru í hljóðverum fyrir um 20 árum. Ef þú átt tölvu heima hjá þér geturðu útbúið stúdíó þar fyrir nokkra tugi þúsunda og hljómgæðin eru mjög viðunandi,“ segir Arnar, en fjölmargir tónlistarmenn sem taka upp tónlist með þessum ódýra hætti hafa komið fram á Youtube-rásinni undanfarin ár og eignast milljónir fylgjenda.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hljóðfærahúsið er til húsa að Síðumúla 20 en húsnæði verslunarinnar var endurbætt mikið fyrir tveimur árum og er mikil upplifun að skoða sig þar um og prófa það sem í boði er. Á heimasíðu fyrirtækisins, hljodfaerahusid.is, má finna góðar upplýsingar um vöruúrvalið, meðal annars jólagjafahandbók. Á Facebook-síðu Hljóðfærahússins eru síðan ljósmyndir og fréttir um viðburði í versluninni en starfsmennirnir hafa stofnað nafnlaust húsband sem verður í miklu jólaskapi næstu vikurnar og spilar fyrir gesti og gangandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
18.06.2024

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær

Madonna di Campiglio – Brekkur við allra hæfi og líflegur og skemmtilegur bær
Kynning
12.06.2024

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ

Stjarnan og Hekla skína í Garðabæ