Úlfur Úlfur rappaði fyrir skrímsli og afturgöngur á Ameríska barnum
Úlfur Úlfur hélt uppi hrikalegu stuði á Ameríska barnum laugardaginn 28. október en þar fór fram hrekkjavökupartí fyrir allan peninginn.
Nokkrir heppnir gestir fengu að drekka beint úr diskókúlum en eftir að Úlfurinn hafði þrumað yfir ófreskjunum tók Dj Maggi við og stýrði stemningunni fram á morgun.
Eins og sjá má á myndunum lögðu margir mikið upp úr því að mæta í flottu gervi, úlfar, ofurhetjur og afdönkuð skrímsli voru meðal gesta og tveir kappar mættu sem tímaritin GQ og Vanity Fair.
Allt stefnir í að hrekkjavakan muni festast hér í sessi á næstu árum enda skemmtileg búningahátíð sem höfðar til bæði barna og fullorðinna.