Sextugur Bandaríkjamaður frá Pennsylvaníu hefur sett nýtt heimsmet eftir að hafa farið hvorki meira né minna en 1.207 sinnum í kvikmyndahús á einu ári. Það jafngildir rúmlega þremur bíóferðum á dag, alla daga ársins.
Maðurinn heitir Glenwood Hoskin Jr. og segir hann að hugmyndin hafi kviknað þegar hann rakst á ýmis heimsmet tengd kvikmyndahúsum á netinu. Upphaflega velti hann fyrir sér að reyna að slá metið í að sjá sömu kvikmyndina oftast í bíó, en það stendur í 292 sýningum.
Hann taldi hins vegar ólíklegt að það tækist þar sem kvikmyndir eru sjaldnast sýndar svo lengi í kvikmyndahúsum nú til dags. Þess í stað ákvað hann að reyna við metið í flestum bíóferðum á einu ári.
„Mér fannst virkilega ánægjulegt að komast út úr húsi og ég hef alltaf haft gaman af áskorunum og því að setja mér markmið,“ segir Hoskin í samtali við Guinness World Records sem hefur nú viðurkennt metið.
Skipulagði hvern einasta dag
Hoskin hóf tilraun sína í apríl 2024 og næstu tólf mánuðina snerist daglegt líf hans að stórum hluta um bíóferðir.
Á hverjum morgni fór hann yfir sýningartíma kvikmyndahúsanna og skipulagði daginn þannig að hann gæti séð sem flestar myndir. Stundum hófst bíómaraþonið snemma morguns og stóð yfir fram að miðnætti.
Fyrra heimsmetið var í eigu Zachariah Swope, sem hafði farið 777 sinnum í bíó á einu ári. Hoskin bætti það met um 430 bíóferðir.
„Ég ákvað að byrja um vorið svo ég gæti vonandi slegið fyrra metið áður en veturinn gengi í garð. Ég þoli ekki að keyra á veturna þannig að allt sem bættist við eftir það var bara bónus,“ segir hann.
Kom sjálfum sér á óvart
Þrátt fyrir gríðarlegan fjölda bíóferða segist Hoskin ekki hafa fengið leið á kvikmyndunum. Þvert á móti hafi margar þeirra komið honum skemmtilega á óvart.
Hann nefnir sérstaklega teiknimyndina The Wild Robot, sem hafi reynst mun betri en hann bjóst við, auk ofurhetjumyndarinnar Deadpool & Wolverine.
„Ég get eiginlega ekki sagt að nokkur mynd hafi verið sérstaklega léleg eða að mér hafi mislíkað einhver þeirra,“ segir Hoskin.