Grein 1 af 2 í umfjöllun um tónlistarhátíðina Airwaves sem fram fer í Reykjavík 5-7 nóvember 2026. Þessi grein er óháð umfjöllun og ekki kostuð kynning af sjálfri hátíðinni.
Þegar ég var í MA skrópuðum við í skólanum til að leigja saman rútu og fara í hópferð suður á Airwaves. Svo stóðum við í hnapp fyrir utan NASA og biðum í fjóra tíma eftir að komast inn á GusGus. Þarna lærðum við að missa vitið á dansgólfinu yfir raftónlist. Það gerðist eitthvað sem ég hafði ekki upplifað áður og hef greinilega ekki enn lokið við að hugsa um, enda sit ég hér tuttugu árum síðar að skrifa um það.
Airwaves var tónlistarhátíð svala fólksins. Lúðar fóru ekki á Airwaves, eða þannig leit heimurinn út hjá þeim hópi sem ég tilheyrði. Fólk var með armböndin föst á sér vikum saman til að votta afrekið. Metnaðarfullar samantektir yfir dagskrárliði sátu samanbrotnar í rassvösum tónleikagesta. Ef það er röð þarna, þá fer ég þangað. En þá gæti ég misst af þessum sem byrjar þarna. Inn í þetta flæktist alls konar pólitík þar sem einhver bönd voru asnaleg þó að þau væru góð og maður gat auðvitað ekki látið sjá sig þar. Svo var gjarnan eitthvað rómantískt flækjustig á þessu.
Í dag virðist mjög mismunandi eftir kreðsum hvort fólk um tvítugt fari á Airwaves eða viti yfirhöfuð af hátíðinni. Hún virðist ekki sami fasti og hjá okkur, þótt maður rugli eigin vinahópi auðveldlega saman við heila kynslóð. Nú finnur fólk sína tónlist og sitt fólk á stafrænum vettvangi án þess að standa í snjóskafli á sokkabuxum fyrir utan NASA, að hlaða í blöðrubólgu frá helvíti, bara til að komast í eitt partý.
Ísleifur Þórhallsson hjá Senu sagði í viðtali við Vísi 1. nóvember að um níutíu prósentum umsókna um að spila á hátíðinni væri hafnað. Bara eitthvað:
„Nei takk, við erum góð.”
Yfir þúsund sóttust eftir að spila. Þarna er menningarkapítalið, kúl-kapítalið, enn til staðar. Það skiptir þá einhverju máli að geta sagt að maður hafi spilað á Airwaves. En skiptir sama máli að hafa verið þar?
Airwaves hófst árið 1999 í flugskýli og varð kynningarvettvangur íslenskrar tónlistar erlendis. Þetta var voða mikið stemningin um aldamótin. Á svona showcase-hátíð hlusta almenningur og tónlistariðnaðurinn á sömu tónleikana með ólíkum tilgangi. Einn leitar að hljómsveit til að bóka, annar að einhverju til að skrifa um og sá þriðji er á leiðinni á fyllerí. Síðan hittast allir á Húð og kyn eftir helgina. Eða bara í sundi. En TikTok er líka eitt stórt showcase. Það er ekkert fínna að finna eitthvað á vínyl í kjallarakompu í Köln en að hnjóta um eitthvað á TikTok. Fólk finnur tónlistina bara þar sem hún er. Hvers vegna þarf það þá að mæta?
Sena Live tók við Airwaves árið 2018 og dró úr umfangi, með meiri áherslu á miðborgina og minni á stór erlend nöfn. Árið 2022 var opinbera dagskráin stytt í þrjá daga. Í ár hverfur Hafnarhúsið af dagskránni vegna kostnaðar og Ráðhúsið kemur inn í staðinn. Það og Kolaportið verða stærstu tónleikastaðirnir, með um sex hundruð gesti hvort. Ég sé alveg fyrir mér að það geti skapast skemmtileg orka í Ráðhúsinu, sem mér finnst hafa verið frekar vannýtt í gegnum árin. Það er sérstaklega viðeigandi að nota húsið í ljósi þess að það hefur verið gríðarleg þörf fyrir tónleikastaði í Reykjavík, en þeim hefur óðum fækkað á síðustu árum. Það er einhver svona létt byltingarorka í þessu. Voðalega norræn og kampavínskennd byltingarorka að vísu.
Opinbera hátíðin fer fram 5.–7. nóvember en stærri sérviðburðir teygja sig út fyrir þá daga. Shygirl spilar í Ráðhúsinu 4. nóvember, Daði Freyr með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg þann 5. nóvember og The Streets flytur A Grand Don’t Come for Free í heild sinni í Eldborg þann 8. nóvember. Það er verið að þjónusta kjarnahópinn með The Streets og sá hópur er með kollvik. Sérstaka miða þarf á þessa þrjá viðburði, en handhafar hátíðarpassa fá afslátt.
Mammút snýr aftur á svið í fyrsta sinn síðan 2023 og á listanum eru líka Agent Fresco, Mugison, Ólöf Arnalds, Birnir og Una Torfa. Af því erlenda vekja Adult DVD athygli mína, bresk sveit sem blandar saman indíi, raftónlist og acid-house-áhrifum. Apex Anima og FRZNTE sameina raftónlist og súludans og Yaelokre kemur með þjóðlagatengda tónlist og myndrænan sagnaheim eftir að „Harpy Hare“ fór á flug á netinu. En þetta er allt í aftursætinu hjá mér.
COBRAH er nefnilega uppáhaldstónlistarkonan mín. Ég fann hana fyrir tilviljun í gegnum reiknirita Spotify þar sem ég hafði verið að hlusta á Grimes og Tove Lo í ræktinni. COBRAH gerði nefnilega lag með Grimes, sem er geggjað. Svona kynfrjáls og gersamlega sturluð háfemínísk raftónlist sem er fullkomin í ræktina eða á dansgólfið eða bara fyrir fólk sem er að ganga í gegnum eitthvað, sem ég var algjörlega að gera á þessum tíma. Svo sat ég með vinkonu minni og var að tala um hvað þessi tónlistarkona væri geggjuð. Þá sagði vinkonan, eins og fyrir kraftaverk: „Þú veist að COBRAH er að spila á Airwaves.“
Ég öskraði.
Spotify hafði kynnt mig fyrir uppáhaldstónlistarkonunni minni en það þurfti vinkonu mína til að segja mér að hún væri á leiðinni til Reykjavíkur. Ég hafði verið ein með henni í heyrnartólunum og nú gat ég séð hana innan um aðra aðdáendur sem hafa væntnalega líka verið aleinir í sínu horni að tapa sér úr hrifningu. Ég get haldið áfram að velta fyrir mér tilverurétti tónlistarhátíða, kolefnissporum og kampavínsbyltingum en mig langar svakalega á þessa tónleika.
GusGus er líka enn með, á sérstökum samstarfsviðburði í Austurbæjarbíói 6. nóvember sem seldir eru sérmiðar á. Mér finnst gott að vita af þeim þarna, en hátíðin lifir auðvitað ekki til lengdar á minningum okkar um hvað við vorum svakalega svöl fyrir tuttugu árum síðan. Hún þarf að koma einhverjum við núna og endurnýja sig.
Ég vil búa í samfélagi þar sem svona hlutir gerast og fólk ferðast hingað með eitthvað annað en hugmyndir um útsýni yfir einhvern fjárans foss. Þar sem íslenskt tónlistarfólk hittir umheiminn og við fáum að heyra eitthvað sem við hefðum annars misst af. Einhvers staðar í dagskránni gætu verið tónleikar sem ég á eftir að muna eftir lengur en ég geri mér grein fyrir. Ég ætla ekki að sitja heima þetta árið og réttlæta það með því að ég „gæti fundið þetta allt saman á netinu“.
Sjáumst í kjötheimum, á Airwaves 2026.