Fókus

Segja leikarann loksins hafa sagt það sem margir hafa hugsað lengi - „Michael Douglas er skítsama!“

Mynd
Skjáskot/BBC

Leikarinn Michael Douglas virðist hafa sagt upphátt það sem margir hafa hugsað lengi ef marka má viðbrögð netheima við ummælum leikarans í spjallþættinum Graham Norton Show á dögunum. Gestir þáttarins voru, auk Douglas, leikararnir Glenn Close, Naomi Ackie og Kieran Culkin.

Það barst til tals í þættinum að Glenn Close myndi hljóta heiðursverðlaun Óskarsverðlaunanna síðar í þessum mánuði. Við þessu sagði leikkonan að líklega ætlaði akademía Óskarsverðlaunanna að losa sig við samviskubit, en Close hefur átta sinnum verið tilnefnd til Óskarsverðlaunanna en aldrei hlotið þau.

Þá sagði Douglas: „Hún hefði átt að vinna fyrir Fatal Attraction. Hún var tilnefnd, að ég held, í fjórða skiptið, fyrir Fatal Attraction. Cher vann það árið.“

Vísaði Douglas þar til frægrar kvikmyndar þar sem hann og Close fóru með aðalhlutverkið og þóttu standa sig svo vel að bæði væru tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir besta leik í aðalhlutverki. Douglas vann í sínum flokki, en Close laut í lægra haldi fyrir söngkonunni Cher sem fékk verðlaunin eftirsóttu fyrir grínmyndina Moonstruck.

Graham Norton spurði Douglas: „Var það fyrir Moonstruck? Vá,“ en þá svaraði leikarinn: „Ég veit, það sögðum við öll.“

Fóru þá allir viðstaddir að skellihlæja.

Leikkonan Ackie taldi ljóst að þarna væri verið að dissa Cher en Douglas tók fram að hann væri virkilega þeirrar trúar að frammistaða Close í Fatal Attraction væri ein af þeim bestu fyrr og síðar.

Graham Norton bætti þá við: „En Char setti smá af gráum strípum í hárið á sér, svo þannig var það.“

Þessi orðaskipti vöktu það mikla athygli að PageSix ákvað að bera þau undir Cher, en talsmaður söngkonunnar sagði að Cher væri mikill aðdáandi Michael Douglas.

Netverjar töldu að leikarinn hefði þarna opinberað það sem margir hafa hugsað, að Close hefði átt að fá verðlaunin frekar en Cher. Sú gagnrýni segi ekkert um söngkonuna annað en að Close hafi staðið sig betur.

Einn skrifar: „Michael Douglas er skítsama! En hann hefur líka rétt fyrir sér.“

Annar segir: „Þetta er einmitt þessi gamla Hollywood-orka sem við viljum meira af.“

Enn annar: „Aldraðir leikarar sem kæra sig kollótta. Elska það.“