Amy Todd, 35 ára tveggja barna móðir frá Glasgow í Skotlandi, hafði í níu ár safnað upp neysluskuldum sem námu um 15 þúsund pundum, jafnvirði rúmlega 2,5 milljóna íslenskra króna.
Þrátt fyrir ágætar heimilistekjur hafði hún misst tökin á fjármálunum og skuldaði á sex kreditkortum auk þess að vera með skuldir hjá nokkrum verslunum og greiðsluþjónustum.
Í umfjöllun Daily Mail segir Amy frá því hvernig henni tókst að greiða niður allar skuldirnar með því að breyta daglegum venjum sínum og fylgja sjö einföldum reglum.
Vaknaði um miðja nótt í skelfingu
Amy starfar sem náms- og starfsráðgjafi í skóla í Glasgow og er með laun sem eru sambærileg við kennaralaun. Hún segir að fjárhagsvandræðin hafi byrjað eftir að sonur hennar fæddist árið 2015. Þá hafi hún farið að nota kreditkort til að standa straum af kostnaði við ýmislegt sem sem heimilistekjurnar dugðu ekki fyrir.
Kaffibolli á leiðinni í vinnuna, nokkrar aukavörur í matvörubúðinni og aðkeyptur matur á annasömum kvöldum virtust saklaus útgjöld. En smám saman hlóðust skuldirnar upp.
Amy taldi sig lengi hafa ágæt tök á fjármálunum enda var lánshæfismat hennar gott og henni bauðst reglulega að flytja skuldir á milli kreditkorta án þess að greiða vexti tímabundið.
Það var ekki fyrr en hún vaknaði um miðja nótt, gripin skelfingu yfir fjárhagsstöðunni, sem hún áttaði sig á því hversu alvarleg staðan var orðin.
Hún óttaðist að ef henni tækist ekki lengur að flytja skuldirnar á vaxtalaus kreditkort, og greiðslubyrði húsnæðislánsins hækkaði á sama tíma, gæti fjölskyldan lent í verulegum fjárhagserfiðleikum.
Kaffibollarnir kostuðu hana stórfé
Vendipunkturinn varð þegar Amy rakst á bókina How to Fund the Life You Want eftir fjármálasérfræðingana Jonathan Hollow og Robin Powell. Þar lærði hún að gera raunhæfa fjárhagsáætlun og fylgjast skipulega með útgjöldum sínum.
Hún byrjaði á því að skipta ráðstöfunartekjum heimilisins í þrjá flokka. Upphaflega studdist hún við svokallaða 50/30/20-reglu, þar sem helmingur teknanna fer í nauðsynjar, svo sem greiðslu af láni eða greiðslur fastra reikninga, 30 prósent í valfrjáls útgjöld og 20 prósent í sparnað eða niðurgreiðslu skulda.
Sú skipting hentaði henni þó ekki og því breytti hún hlutföllunum þannig að 60 prósent fóru í heimilisrekstur, 10 prósent í skemmtanir og önnur valfrjáls útgjöld og 30 prósent í skuldir og sparnað.
Eitt mesta áfallið varð þegar hún reiknaði út kostnaðinn við dagleg kaffikaup. Kaffibolli sem kostaði um fjögur pund, eða nokkur hundruð krónur, virtist lítið mál hverju sinni. Þegar hún lagði saman útgjöldin yfir níu ára tímabil kom hins vegar í ljós að kaffikaupin höfðu kostað hana vel á aðra milljón íslenskra króna.
Lækkaði matarútgjöldin verulega
Amy tók einnig upp þá reglu að skipta peningunum niður á mismunandi reikninga eftir því í hvað þeir áttu að fara. Hún setti meðal annars ákveðna upphæð til hliðar fyrir matvörum, reikningum og skemmtunum.
Þá hætti hún að fara í matvöruverslanir og fór þess í stað að panta allar matvörur á netinu einu sinni í viku.
Að hennar sögn lækkuðu vikuleg matarútgjöld fjölskyldunnar úr 200–230 pundum niður í um 120 pund. Það jafngildir lækkun um 40–48 prósent.
Hún segir að með þessu hafi hún losnað við skyndikaup, óþarfa búðarferðir og sífelldar beiðnir barnanna um sælgæti og aðrar vörur.
Amy fer nú þrisvar í mánuði yfir fjármál heimilisins, strax eftir útborgun, um miðjan mánuð og í lok hans. Hún hefur jafnframt tekið upp þá venju að eiga alltaf einfaldar máltíðir í frystinum svo ekki þurfi að panta mat heim þegar hún kemur þreytt heim úr vinnunni.
Sjö reglur sem breyttu öllu
Amy segir að eftirfarandi reglur hafi hjálpað henni að ná tökum á fjármálunum:
- Skiptu tekjunum niður: Ákveddu fyrir fram hversu stór hluti fer í nauðsynjar, valfrjáls útgjöld og sparnað eða skuldir.
- Skoðaðu smáútgjöldin: Kaffibollar og önnur dagleg kaup geta orðið að háum fjárhæðum yfir lengri tíma.
- Hafðu aðskilda sjóði: Skiptu peningunum niður eftir því í hvað þeir eiga að fara.
- Skipuleggðu matarinnkaupin: Netverslun getur hjálpað til við að forðast óþarfa skyndikaup.
- Farðu reglulega yfir fjármálin: Þrjár yfirferðir í mánuði geta hjálpað til við að halda útgjöldunum innan áætlunar.
- Undirbúðu annasama daga: Eigðu einfaldan mat tilbúinn svo þreyta leiði ekki sjálfkrafa til aukinna útgjalda.
- Forðastu óskipulögð kaup með börnunum: Veldu með þeim fyrir fram hvað á að kaupa í stað þess að taka ákvarðanir í versluninni.
Amy segist nú hafa greitt allar skuldirnar og jafnframt byggt upp sparnað sem hún hafði aldrei áður átt. Hún á nú 3.000 pund í neyðarsjóði og 5.000 pund á fjárfestingarreikningi.
Hún deilir reynslu sinni og sparnaðarráðum á TikTok undir notandanafninu @amylearnstosave, þar sem hún er með yfir 30 þúsund fylgjendur.