Fókus

Poppstjarnan óþekkjanleg 24 árum eftir að hún sló í gegn

Mynd

Hún var aðeins 17 ára þegar hún skaust upp á stjörnuhimininn með einum stærsta poppsmelli fyrsta áratugar aldarinnar.

Tónlistarmyndbandið vakti gríðarlega athygli og olli miklu fjaðrafoki, en söngkonan varð heimsfræg nánast á einni nóttu. Nú, 24 árum síðar, er hún sögð nánast óþekkjanleg á nýlegum myndum sem hún hefur birt á samfélagsmiðlum.

Um er að ræða rússnesku söngkonuna Juliu Volkovu, sem sló í gegn ásamt Lenu Katinu í poppdúettinum t.A.T.u. með laginu All The Things She Said árið 2002. Lagið fór á topp vinsældalista víða um heim, meðal annars í Bretlandi.

Myndbandið olli miklu fjaðrafoki

Ekki var síður rætt um tónlistarmyndbandið við lagið, þar sem þær stöllur sáust kyssast ástríðufullum kossi í blautum skólabúningum. Myndbandið þótti afar ögrandi á sínum tíma og var meðal annars bannað í breska tónlistarþættinum CD.

Volkova, sem var þekkt fyrir stuttklippt hár og unglegt yfirbragð, hefur tekið töluverðum útlitsbreytingum frá þessum tíma. Söngkonan er nú 41 árs og skartar síðu hári og fjölmörgum húðflúrum á myndum sem hún birtir á Instagram.

t.A.T.u. naut áfram vinsælda eftir fyrsta stórsmellinn og sendi meðal annars frá sér lögin Not Gonna Get Us og All About Us. Dúettinn keppti einnig fyrir hönd Rússlands í Eurovision árið 2003 og hafnaði í þriðja sæti.

Mynd

Ummæli sem komu mörgum á óvart

Volkova hefur einnig ratað í kastljósið fyrir umdeild ummæli sín. Hún sætti meðal annars harðri gagnrýni fyrir ummæli um samkynhneigða karla í sjónvarpsviðtali.

Þar var hún spurð hvernig hún myndi bregðast við ef sonur hennar reyndist samkynhneigður. Söngkonan, sem hefur sjálf sagst vera tvíkynhneigð, svaraði því til að hún myndi fordæma hann.

„Ég tel að alvöru karlmaður eigi að vera alvöru karlmaður,“ sagði hún og bætti við að henni þætti samband tveggja kvenna mun fallegra á að líta en samband tveggja karla.

Glímdi við alvarleg veikindi

Volkova, sem er tveggja barna móðir, hefur einnig gengið í gegnum erfiða tíma í einkalífinu. Árið 2012 greindist hún með skjaldkirtilskrabbamein og gekkst undir meðferð í Moskvu.

Sjúkdómurinn tók sig aftur upp árið 2019 en meðferð bar árangur og var hún lýst lausri við krabbameinið í október sama ár.

Eftir að hafa farið hvor í sína áttina og komið saman á ný nokkrum sinnum í gegnum árin sameinuðust Volkova og Katina enn á ný í júlí 2025. Í kjölfarið boðuðu þær tónleikaferð um Rússland, Evrópu og Suður-Ameríku.