„Hvað þú borðar fyrir og eftir æfingu getur verið leikbreytir fyrir betri árangur, vöðvabyggingu og frammistöðu.“
Svona hefst pistill Ragnhildar Þórðardóttur, betur þekkt sem Ragga Nagli, á Facebook. Ragnhildur er sálfræðingur með áherslu á heilsusálfræði og lærður einkaþjálfari. Pistlar hennar um heilsu á mannamáli hafa notið mikilla vinsælda um árabil.
Ragnhildur segir það skipta miklu máli hvað fólk borðar fyrir og eftir æfingu, en allt of margir æfa eldsnemma á morgnana með tóman maga eða illa nærðir.
Hún segir kjörið að fókusa á hraðlosandi kolvetni þegar æft er klukkan sex á morgnana.
„Með því að fókusa fyrir snemmæfingu á hraðlosandi kolvetni, eins og brauðsneið eða banana, til að fá orku í átökin sem skilar sér hratt í blóðrás og er aðgengilegt eftir 20 til 30 mínútur.
Parað með 15 g prótíni sem gæti verið 1/2 skúbba kollagenprótínduft eða einni hleðslu.
Ef þú ferð á æfingu án þess að vera með einhvern snæðing í mallakút er eins og að leggja af stað til Akureyrar með bensínljósið í ljósandi logum í mælaborðinu.
Jú, jú, þú kemst af stað, en einhvers staðar fljótlega eftir Esjuna og Flatus lifir veggjakrotið af, ferðu að hökta niður í annan gír eða þarft jafnvel að setja í hlutlausan og láta þig renna.
Þá ertu ekki að taka á því af þeim krafti sem þarf til að byggja vöðva.“
En hvað með eftir æfingu?
„Eftir lyftingaæfingu eru vöðvarnir eins og hungraðir fuglsungar og vilja næringu NÚNA, NÚNA, NÚNA.
Við viljum hefja viðgerðarferli og prótínmyndun sem allra fyrst eftir æfingu svo vöðvarnir stækki og styrkist og við mætum með fítonskraft í átök á næstu æfingu.
Við viljum líka keyra niður kortisólið sem allra fyrst.“
Ragnhildur segir að eftir lyftingaæfingu séu prótín og hraðlosandi (einföld) kolvetni bestu vinir þínir. Hún segir að það sé mikilvægt að borða nóg prótín til að byggja upp vöðvamassa.
„Það þarf samt að passa að fituinnihald kolvetnanna sé í lægri kantinum, því fita hægir á frásogi og dregur þannig úr losunarhraða kolvetna út í blóðrás og prótín skilar sér hægar til vöðvanna. Það viljum við alls ekki á þessum tíma,“ segir Ragnhildur.
Hún fer nánar út í prótínmagn í pistlinum sem má lesa hér að neðan.
„Gott viðmið er 30-40 g prótín eftir æfingu, sem þýðir yfirleitt 2 skóflur af prótíndufti.“