Ástralinn Megan Hancocks vildi losna við nokkur aukakíló og eftir að hafa heyrt góða hluti um peptíðið retatrútíð, eða reta eins og það er gjarnan kallað, ákvað hún að slá til, jafnvel þó að lyfið sé nú aðeins fáanlegt á svörtum markaði.
Það var ekki hlaupið að því að finna lyfið en það vildi þó svo til að á tíma á snyrtistofu var Hancocks boðið að kaupa reta frá kínverskum framleiðanda. Hún keypti þá bæði reta og annað peptíð sem kallast GHK-Cu, en endaði svo ekki með að nota það síðarnefnda.
Þegar kom að því að sprauta sig með lyfinu hikaði Hancocks, sem er 32 ára gömul. Hún hafði engar leiðbeiningar fengið um skammtastærð og gerði sér eins grein fyrir því að hún hefði ekki ráðfært sig við lækni.
Þann 24. desember ákvað hún að láta slag standa og sprautaði sig með fyrsta skammtinum. Hún sprautaði sig svo aftur fjórum dögum síðar. Á innan við viku var Hancocks komin á sjúkrahús með bráða lifrarbilun. Vegna lifrarbilunarinnar fékk hún mikla gulu þar sem húð hennar varð gulleit sem og hvítan í augum hennar. Hún glímdi einnig við stöðuga ógleði, uppköst, hægðatregðu, magabólgur og þreytu. Hún var á sjúkrahúsinu í um það bil mánuð en þar tókst að bjarga lifrinni hennar en um tíma stefndi í að hún þyrfti líffæraígræðslu.
Hún hafði samt ekki náð fullri heilsu á ný og næsta hálfa árið þurfti hún ítrekað að leggjast inn á sjúkrahús og taka inn lyf til að hjálpa lifrinni að ná sér. Hún gat ekki unnið lengur og flutti til móður sinnar.
Meðferðin við lifrarbiluninni varð til þess að Hancocks þyngdist og glímdi við hárlos og sáraútbrot.
„Þegar ég lít í spegilinn sé ég ekki sömu manneskjuna lengur og það hefur reynst mjög erfitt,“ sagði Hancocks í samtali við fjölmiðla.
New York Post vakti á dögunum athygli á reynslu Hancocks og tók fram að tveir hafi nú látið lífið í Bandaríkjunum vegna retatrútíð sem er framleitt og selt á svörtum markaði. Annars vegar var um að ræða 41 árs einstakling sem lést úr hjartaáfalli og hins vegar 49 ára einstakling sem lést eftir að hafa glímt við alvarlega ofþornun, vannæringu og hjartaáfall.
ABC fréttastofan greindi frá því í ágúst að sjö einstaklingar í Victoria í Ástralíu hafi greinst með lifrarbilun vegna peptíðsins. Veltu læknar fyrir sér hvort að tilfellin bentu til þess að menguð útgáfa af svartamarkaðsreta væri í sölu. Neytendur þyrftu að vera meðvitaðir um að það reta sem selt er í dag er ekki það retatrútíð sem nú er í klínískum prófunum hjá lyfjaframleiðandanum Eli Lilly. Neytendur væru því að taka töluverða áhættu.