Fókus

Útspil leikara þykir benda til þess að næsti James Bond sé fundinn

Mynd
Daniel Craig.

Er næsti James Bond fundinn? Þessu velta margir fyrir sér eftir að þau tíðindi bárust að leikarinn Callum Turner hefði sagt af sér sem forstjóri kvikmyndaframleiðslunnar TwentytwoFilms Ltd. sem hann stofnaði með eiginkonu sinni, tónlistarkonunni Dua Lipa.

Fyrirtækið var stofnað í ágúst og þykir mörgum ólíklegt að Turner myndi stíga til hliðar nema hafa fyrir því góða ástæðu á borð við að hann sé að fara að taka að sér hlutverk eins þekktasta njósnara bókmennta- og kvikmyndasögunnar, sjálfs 007.

Mynd

Áður hefur komið fram að þrír helstu kandídatarnir í baráttunni um þetta eftirsótta hlutverk væru auk Turners þeir Jack Lowden og Josh O'Connor. Lokaprufurnar fóru fram í vikunni sem leið svo það er mögulegt að næsti Bond hafi þegar verið valinn.

Það er ljóst að mikill tími mun fara í verkefnið hjá leikaranum sem verður fyrir valinu og því líklegt að þeir muni ekki hafa tíma í margt annað, eins og kannski að gegna starfi forstjóra í kvikmyndaframleiðslu.

Lögmaðurinn David Farquharson hefur tekið við forstjórastarfinu og líklegt er talið að Dua Lipa muni syngja næsta Bond-lag.

Veðbankarnir töldu líklegast að Jack Lowden fengi hlutverkið.

The Sun greinir frá.