Fókus

Raunveruleikastjarna vakti reiði með hrekkjavökubúningum fjölskyldunnar

Mynd

Hrekkjavakan fór fram í gær að venju þar sem margir klæddu sig í búning og skelltu sér í samkvæmi eða á stúfana eftir sælgætisgjöfum hjá nágrönnunum. Margir Bandaríkjamenn leggja mikinn metnað í búninga og var raunveruleikastjarnan McCall DaPron þar engin undantekning.

Vinsælu raunveruleikaþættirnir The Secret Lives of Mormon Wifes eru nú að færa út kvíarnar og eru nú væntanlegir systurþættir sem eiga sér stað í Orange County, en þar er DaPron ein af stjörnunum.

DaPron hefur nú verið harðlega gagnrýnd fyrir ósmekklegheit eftir að hún birti á fimmtudaginn mynd af sér og fjölskyldu sinni í hrekkjavökubúningum.

DaPron og eiginmaður hennar klæddu sig upp sem fyrrverandi forsetahjón Bandaríkjanna, þau Jackie og John F. Kennedy. Það sem vakti reiði var að þau völdu fatnað sem átti að tákna daginn sem forsetinn var skotinn til bana við hlið eiginkonu sinnar. Börn þeirra voru klædd upp sem börn forsetahjónanna og leyniþjónustufulltrúar.

Mynd
Mynd/Instagram

Netverjum fannst þetta yfirgengilega ósmekklegt af raunveruleikastjörnunni, enda hafi búningarnir vísað til eins mesta harmleiks Bandaríkjanna. Fór svo að DaPron eyddi myndinni en skaðinn var þó skeður.

Hún hefði kannski átt að muna hvernig búningi leikkonunnar Juliu Fox var tekið á síðasta ári. Fox klæddi sig upp sem Jackie Kennedy þakin blóði eiginmanns síns. Barnabarn forsetahjónanna, Jack Schlossberg, úthúðaði leikkonunni sem hann sakaði um að upphefja pólitísk ofbeldisverk með búningi sínum. Hann sagði búninginn: „viðbjóðslegan, örvæntingafullan og hættulegan“.

Fox vildi þó meina að búningur hennar væri ákveðin yfirlýsing um að Jackie hefði neitað að skipta um föt eftir að maður hennar dó og sagði: „Látum þá sjá hvað þeir hafa gert Jack.“ Jackie klæddist blóðugum fötum þegar varaforsetinn Lyndon B. Johnson tók embætti. Fox sagði að þar hefði forsetafrúin sýnt aðdáunarvert hugrekki.

„Þetta snýst um áfall, vald og hvernig kvenleikinn getur verið ákveðið form af viðspyrnu.“

Hrekkjavakan á sér langa sögu. Hún er ættuð frá Keltum sem héldu upp á hátíðina Samhain þar sem þakkir voru færðar fyrir uppskeru sumarsins og til að boða komu vetrar. Á Írlandi og í Skotlandi myndaðist hefð fyrir því að unglingar og fullorðnir færu milli húsa klæddir búningum með grímum og gerðu öðrum þá gjarnan grikk í leiðinni.

Írar og Skotar tóku svo hrekkjavökuna með sér þegar þeir fluttust búferlum til Ameríku á 19. öldinni. Þar uppgötvuðu þeir þó að ekki væri hægt að skera út næpur eins og þeir höfðu stundað á hrekkjavökunni í heimalöndum sínum. Hins vegar var nóg af graskerum í Bandaríkjunum sem reyndust bæði stærri en næpurnar og auðveldara að skera úr.