Írski söngvarinn Eddie Friel, sem keppti fyrir hönd Írlands í Eurovision árið 1995, er látinn, 64 ára að aldri, eftir stutt veikindi.
Íslenskir Eurovision-aðdáendur kannast ef til vill við Friel, en hann tók þátt í keppninni sama ár og Björgvin Halldórsson flutti lagið Núna fyrir Íslands hönd.
Friel lést í Innsbruck í Austurríki, þar sem hann hafði búið um árabil.
Friel var fæddur í Belfast en ólst upp í Donegal á Írlandi. Hann hóf tónlistarferil sinn á níunda áratugnum og varð síðar þekktur í tónlistarlífi Norður-Írlands. Hann starfaði með fjölmörgum þekktum tónlistarmönnum og lék meðal annars á píanó, orgel og hljóðgervla á plötu Van Morrison, Hymns to the Silence, sem kom út árið 1991.
Friel tryggði sér þátttökurétt í Eurovision árið 1995 með laginu Dreamin', en keppnin fór fram í Dublin á Írlandi. Írar höfðu þá unnið Eurovision þrjú ár í röð og vonuðust til að halda sigurgöngunni áfram.
Þátttaka Friels var þó í uppnámi skömmu fyrir keppnina þegar ásakanir um lagastuld komu fram. Því var haldið fram að Dreamin' væri mjög líkt laginu Moonlight, sem söngkonan Julie Felix hafði gefið út árið 1971.
Írska ríkisútvarpið RTÉ íhugaði um tíma að draga lagið úr keppni. Að lokum náðist þó samkomulag við fulltrúa Felix og Friel fékk að stíga á svið.
Þegar stigin höfðu verið talin kom í ljós að Friel hafði hlotið 44 stig og hafnað í 14. sæti. Hann var því einu sæti ofar en Björgvin Halldórsson, sem hafnaði í 15. sæti með lagið Núna og hlaut 31 stig.
Sigurvegari keppninnar var norski dúettinn Secret Garden með lagið Nocturne.