Fókus

Margir Íslendingar gera þetta um leið og þeir koma heim – En er það nauðsynlegt? Svarið gæti komið á óvart

Mynd
Mynd/Pexels

Flestir Íslendingar eru vanir því að fara úr útiskónum þegar þeir koma heim og mörgum þykir óhugsandi að ganga um heimilið á sömu skóm og þeir hafa notað utandyra.

En hversu mikil sýkingarhætta fylgir því í raun að ganga um á útiskónum innandyra? Svarið gæti komið mörgum á óvart.

Dirk Bockmühl, prófessor í hreinlæti og örverufræði við Rhein-Waal-háskólann í Þýskalandi, segir að sýkingarhætta af útiskóm inni á heimilum sé almennt mun minni en margir halda.

Í samtali við austurríska miðilinn Der Standard segir hann að þótt ýmis óhreinindi og bakteríur berist inn á heimili með skósólum þýði það ekki sjálfkrafa að heilsu fólks sé stefnt í hættu.

„Svo lengi sem það sem er á skónum helst á gólfinu, skórnir enda ekki á koddanum og fólk borðar ekki af gólfinu, er í raun engin hætta,“ segir hann.

Handþvotturinn mun mikilvægari

Bockmühl útskýrir að til þess að sýklar valdi veikindum þurfi þeir að komast inn í líkamann og það í nægilega miklu magni. Þótt bakteríur finnist á skósólum sé ólíklegt að þær berist þaðan inn í líkamann með þeim hætti að sýking hljótist af.

Hann segir fólk því oft hafa óþarflega miklar áhyggjur af útiskóm innandyra. Mun mikilvægara sé að gæta að handþvotti.

„Betra er að þvo sér tíu sinnum um hendurnar en að fara einu sinni úr skónum,“ segir hann.

Hann bendir á að óhreinar hendur séu mun líklegri til að bera sýkla inn í líkamann, til dæmis þegar fólk nuddar sér um augun eða snertir munninn.

Sérstök ástæða til að gæta varúðar með lítil börn

Það þýðir þó ekki að fólk eigi að venja sig á að ganga inn á skítugum skónum. Þvert á móti.

Bockmühl segir sérstaka ástæðu til að gæta varúðar á heimilum þar sem lítil börn eru, enda séu þau gjarnan mikið á gólfinu og setji ýmsa hluti upp í sig.

Sama eigi við um heimili þar sem búa aldraðir, barnshafandi konur eða einstaklingar með skert ónæmiskerfi.

Prófessorinn ráðleggur fólki að draga skýr mörk á milli þess sem er utandyra og innandyra, meðal annars með því að fara úr skónum við útidyrnar og þvo sér um hendurnar þegar heim er komið.

Hann segir þó enga ástæðu til að grípa til stórfelldra sótthreinsunaraðgerða þótt gestir gangi inn á útiskónum. Venjuleg þrif dugi yfirleitt vel.

Varar við algengum mistökum foreldra

Bockmühl nefnir einnig annað atriði sem gæti komið foreldrum á óvart.

Hann segir það mistök þegar foreldrar sleikja snuð sem hefur dottið á gólfið áður en þeir setja það aftur upp í barn sitt.

Með því geti bakteríur úr munni foreldranna borist til barnsins, meðal annars bakteríur sem tengjast tannskemmdum. Betra sé að þrífa snuðið með viðeigandi hætti.

Niðurstaða prófessorsins er því sú að fólk þurfi ekki að óttast alla sýkla sem berast inn á heimilið. Flestar bakteríur séu skaðlausar og eðlileg þrif og góður handþvottur skipti mestu máli.

Sjálfur segist hann þó alltaf fara úr útiskónum við útidyrnar, þótt hann telji sýkingarhættuna af því að vera í þeim innandyra almennt litla.