Fókus

Leyndarmál miðaldra kvenna afhjúpað – „Eiginmennirnir ættu að vera þakklátir“

Mynd
Mynd/Pexels

Erótískar fantasíubókmenntir njóta sívaxandi vinsælda og virðast hafa sérstakt aðdráttarafl fyrir konur á miðjum aldri. Sumar þeirra segja lesturinn ekki aðeins veita kærkomna tilbreytingu frá hversdagsleikanum heldur einnig blása nýju lífi í kynlífið.

Um þetta skrifar Susannah Jowitt, 57 ára breskur rithöfundur, í skemmtilegum pistli í Daily Mail. Þar lýsir hún eigin reynslu af svokölluðum romantasy-bókum, þar sem ástarsögur, kynlíf og fantasíuheimar fléttast saman.

Jowitt segist hafa lesið 26 slíkar bækur það sem af er ári og viðurkennir fúslega að hún hafi undanfarin ár ítrekað verið eiginmanni sínum, sem hún hefur verið gift í 28 ár, „ótrú“ með vampírum, varúlfum og álfum. Allt hafi þetta þó gerst í ímyndunaraflinu.

Hún er langt frá því að vera ein um áhugann. Jowitt er meðal annars í WhatsApp-hópi með 39 öðrum konum á miðjum aldri þar sem þær ræða þessar bókmenntir.

Að sögn Jowitt hafa bækurnar hjálpað mörgum konum að átta sig betur á eigin löngunum og öðlast aukið sjálfstraust til að segja mökum sínum hvað þær vilja í svefnherberginu.

Hún gengur raunar svo langt að velta því fyrir sér hvort fjölmargir miðaldra eiginmenn eigi þessum bókmenntum að þakka að kynlífið sé enn til staðar í hjónabandinu. Þeir ættu því í raun að „vera þakklátir“ eins og hún orðar það.

Vinsældir bókanna eru enda miklar. Samkvæmt tölum sem Jowitt vísar til hafa Bretar varið 63,5 milljónum punda í vísinda- og fantasíubókmenntir það sem af er árinu, en erótískar fantasíusögur skipa sinn sess á metsölulistum.

Jowitt segir að þótt sumir líti niður á þessar bókmenntir sjái hún enga ástæðu til að skammast sín fyrir áhugamálið. Þvert á móti hvetur hún aðrar konur til að njóta þessara bóka án samviskubits.