Fókus

Póstkort hlýtur verðlaun í New York sem besta stutta heimildarmyndin

Mynd

Íslenska heimildarmyndin Póstkort eftir Freyju Kristinsdóttur hlaut um síðustu helgi verðlaun sem besta stutta heimildarmyndin á Nordic International Film Festival í New York. Þetta eru önnur alþjóðleg verðlaun myndarinnar á innan við mánuði, en hún er nú í keppni um tilnefningu til Óskarsverðlaunanna 2027.

Verðlaunin voru afhent laugardagskvöldið 24. október á lokahátíð Nordic International Film Festival í New York, þar sem Freyja tók sjálf við verðlaununum. Myndin var sýnd á hátíðinni daginn áður, í Scandinavia House á Manhattan, og hlaut afar góðar viðtökur áhorfenda.

Póstkort segir ástarsögu foreldra Freyju, Stellu og Kristins. Þegar Kristinn gekk Jakobsveginn í fyrsta sinn, ritaði hann daglega póstkort til Stellu, samtals 46 póstkort, eitt póstkort fyrir hvert ár sem þau höfðu þekkst. Stella hafði nýlega greinst með Alzheimer sjúkdóminn og því var kærkomið að rifja upp líf þeirra saman á þennan hátt. Í gegnum póstkortin, gamlar fjölskyldumyndir og teiknimyndir, birtist áhrifamikil saga um ást, missi og minningar sem lifa áfram.

Myndin hefur vakið athygli á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum á undanförnum mánuðum. Í lok september hlaut hún aðalverðlaun dómnefndar sem besta stutta heimildarmyndin á Edmonton International Film Festival í Kanada. Með þeim sigri öðlaðist myndin þátttökurétt í keppninni um Óskarsverðlaunin árið 2027.

Fyrr á árinu hlaut Póstkort einnig tvenn Edduverðlaun, sem besta stutta heimildarmynd ársins og fyrir uppgötvun ársins.

Myndin er nú í kynningarherferð fyrir 99. Óskarsverðlaunahátíðina, en tilkynnt verður um þær 15 stuttu heimildarmyndir sem komast á svokallaðan stuttlista þann 15. desember næstkomandi.

Freyja Kristinsdóttir leikstýrir myndinni og Heather Millard framleiðir fyrir Silfurskjá.