Hollywood stjarnan Jennifer Lawrence varð reið eftir að hún komst að því að starfsfólk kvikmyndavers hafði gónt á nektarsenu af henni án heimildar. Gekk hún á framleiðendurna vegna þess.
Lawrence greinir frá þessu í hlaðvarpinu Call Her Daddy.
Sagði hin 36 ára leikkona að vegna sinnar stöðu í Hollywood hefði hún afl til að mótmæla og lát í sér heyra þegar svona kemur upp. Það hafa hins vegar alls ekki allar ungar leikkonur. Sagðist hún gera sér grein fyrir því að hún hafi visst ábyrgðarhlutverk í greininni.
„Ég læt meira í mér heyra, enda er ég mér líka meðvituð um þá stöðu sem ég hef innan greinarinnar,“ sagði Lawrence.
Hafi það gerst að starfsfólk kvikmyndavers sem ekki hafi átt að vera á staðnum hafi verið hleypt inn þegar verið var að taka upp atriði þar sem Lawrence var nakin.
Varð að láta í sér heyra
Fannst Lawrence sem henni bæri skilda til að láta í sér heyra út af þessu. Fyrst ein af stærstu leikkonum í Hollywood gæti ekki gert ráð fyrir að einkalíf hennar væri virt, hvað þá með óþekktar 18 ára leikkonur?
Greindi hún ekki frá því hvaða atriði var um að ræða og í hvaða kvikmynd. En samkvæmt kjarasamningum leikara í Hollywood eiga nektar og kynlífsatriði einungis að vera tekin upp í aflokuðum rýmum og aðeins það starfsfólk að vera á staðnum sem nauðsynlega þarf að vera það, eins og leikstjórar, kvikmyndatökumenn og ljósamenn.
Árið 2014, þegar Lawrence var aðeins 22 ára, fóru stolnar nektarmyndir af henni í dreifingu. Lawrence lét í sér heyra þá, gagnrýndi bæði hakkarana sem höfðu dreift myndunum og alla þá sem væru að góna á myndirnar. Benti hún á að þetta væri ekkert annað en kynferðisbrot.