Fókus

Láta brjóta í sér rifbeinin til að fá mjórra mitti – Læknar vara við afleiðingunum

Mynd
Mynd/Pexels

Sífellt fleiri konur kjósa að gangast undir umdeilda fegrunaraðgerð þar sem rifbein eru brotin til að gera mittið mjórra. Aðgerðin getur haft alvarlega fylgikvilla og sumar konur sem hafa gengist undir hana lýsa sársaukanum eins og þær hafi orðið fyrir strætisvagni.

Breska blaðið The Guardian fjallar ítarlega um þessa nýju bylgju og ræðir meðal annars við konur sem hafa gengist undir aðgerðina og lækna sem vara við áhættunni.

Aðgerðin felst í því að brjóta neðstu rifbeinin að hluta og færa þau til. Sjúklingarnir þurfa síðan að ganga í sérstöku, þröngu lífstykki í allt að þrjá mánuði á meðan beinin gróa í nýrri stöðu. Markmiðið er að skapa útlit þar sem mittið er áberandi mjótt.

Annað lungað féll saman

Ein þeirra sem Guardian ræðir við er Sophia, trans kona sem gekkst undir aðgerðina í Beverly Hills í Bandaríkjunum í nóvember á síðasta ári. Hún hafði vonast til að vakna eftir aðgerðina og jafna sig á hótelherbergi sínu en þess í stað beið hennar sjúkrabíll.

Í ljós kom að annað lunga hennar hafði fallið saman að hluta. Hún þurfti súrefnisgjöf en næstu vikurnar glímdi hún við mikla verki og öndunarerfiðleika.

Þrátt fyrir þessa reynslu ákvað Sophia að gangast undir aðra aðgerð í september síðastliðnum þar sem meðal annars voru fjarlægðir hlutar af rifbeinum og þau fest með títanplötum og skrúfum.

„Batinn hefur verið töluvert sársaukafyllri og ég finn fyrir meiri mæði,“ sagði hún við Guardian eftir síðari aðgerðina.

Læknar vara við alvarlegum afleiðingum

Sandip Hindocha, sérfræðingur í lýtalækningum í Lundúnum, lýsir miklum efasemdum um aðgerðina.

„Ef sjúklingur kæmi á stofuna til mín og segðist vilja gangast undir þetta myndi ég spyrja: Hvers vegna viltu gera þetta? Og hvers vegna viltu breyta líkamanum þínum með svona varanlegum hætti?“

Hann bendir á rannsókn á 2.351 sjúklingi sem gekkst undir mótunaraðgerð á rifbeinum á árunum 2018 til 2024. Samkvæmt henni fengu 3,7 prósent sjúklinganna fylgikvilla.

„Það er ekkert lítið hlutfall,“ segir hann og vísar í aðrar lýtaaðgerðir þar sem fylgikvillar eru mun sjaldgæfari.

Meðal alvarlegustu fylgikvilla eru loftbrjóst og blóðsöfnun í brjóstholi, sem hvort tveggja getur verið lífshættulegt.

Bresku samtökin BAAPS, samtök lýtalækna sem sérhæfa sig í fegrunaraðgerðum, mæla ekki með aðgerðinni. Nora Nugent, fyrrverandi forseti samtakanna, bendir á að aðferðin sé tiltölulega ný og takmarkaðar upplýsingar liggi fyrir um langtímaáhrif hennar.

Þrátt fyrir áhættuna telja sumir lýtalæknar að vinsældir slíkra aðgerða muni halda áfram að aukast. Leif Rogers, lýtalæknir í Kaliforníu, segir samfélagsmiðla eiga stóran þátt í þróuninni.

„Samfélagsmiðlar láta allt springa út,“ segir hann.