Fókus

Konur snúa baki við ákveðinni tegund karlmanna – Þetta vilja þær í staðinn

Mynd
Mynd/Pexels

Hugmyndin um hinn sterka og ráðandi karlmann, sem tekur allar ákvarðanir og hefur stjórnina í ástarsamböndum, virðist ekki höfða til kvenna í sama mæli og stundum er haldið fram. Ný könnun bendir til þess að konur kunni mun betur að meta karlmenn sem sýna tilfinningar, veita stuðning og eru tilbúnir að deila ábyrgð og frumkvæði í sambandinu.

Frá þessu greinir New York Post, sem fjallar um niðurstöður könnunar sem stefnumótaappið Chyrpe stóð fyrir.

Samkvæmt könnuninni segjast 63 prósent kvenna frekar vilja eiga í sambandi við karlmann sem er tilfinningalega opinn og styður maka sinn en þann sem aðhyllist hefðbundnar hugmyndir um ráðandi karlmennsku.

Alls sögðust 44 prósent kvennanna ekki myndu sækjast sérstaklega eftir sambandi við svokallaða alpha male-týpu, eða karlmann sem leggur áherslu á að vera ráðandi í samskiptum og samböndum.

Aðeins þrjú prósent kvennanna sögðust sækjast eftir stjórnsemi hjá maka, níu prósent töldu yfirráð aðlaðandi og 16 prósent lögðu sérstaka áherslu á ákveðni.

Aðlaðandi í skáldskap en síður í raunveruleikanum

Ein athyglisverðasta niðurstaða könnunarinnar er að 45 prósent kvenna telja ráðandi karlmenn af þessari gerð aðeins aðlaðandi í skáldskap, til dæmis í kvikmyndum og bókum.

Þá telja 54 prósent að samband við slíkan mann leiði gjarnan til þess að þarfir hans séu settar í forgang á kostnað þarfa konunnar.

Á sama tíma virðast margir karlmenn finna fyrir þrýstingi um að uppfylla einmitt þessar hefðbundnu hugmyndir um karlmennsku.

Rúmlega þriðjungur karlanna, eða 35 prósent, sagðist hafa orðið fyrir háði frá karlkyns vinum sínum ef þeir tækju ekki að sér ráðandi hlutverk í sambandinu. Þá sögðust 37 prósent finna fyrir þrýstingi frá samfélagsmiðlum um að sýna eiginleika sem gjarnan eru tengdir hinum sterka og ráðandi karlmanni.

Karlmenn virðast ekki átta sig á því hvað konur vilja

Könnunin leiddi einnig í ljós töluverðan mun á því hvaða eiginleika konur sækjast eftir í fari maka og því hvaða eiginleika karlmenn telja að konur kunni helst að meta.

Alls töldu 62 prósent kvenna mikilvægt að makinn væri stuðningsríkur, en aðeins 48 prósent karla töldu konur leggja sérstaka áherslu á þann eiginleika.

Svipaður munur kom fram þegar spurt var um tryggð, góðmennsku og hæfileikann til að hlusta. Þannig töldu 61 prósent kvenna tryggð mikilvæga, samanborið við 46 prósent karla sem töldu konur leggja áherslu á hana.

Góðmennska skipti 58 prósent kvenna máli, en 40 prósent karla töldu konur leggja áherslu á þann eiginleika. Þá lögðu 52 prósent kvenna áherslu á að makinn kynni að hlusta, samanborið við 41 prósent karla sem töldu konur leggja áherslu á það.

Gamlar hugmyndir á undanhaldi?

Gigi Engle, sérfræðingur Chyrpe í samböndum, segir niðurstöðurnar benda til þess að hefðbundnar hugmyndir um aðdráttarafl og hlutverk kynjanna séu að breytast.

Hún bendir á að karlmönnum sé gjarnan kennt að þeir þurfi að vera ráðandi og hafa stjórnina til að teljast eftirsóknarverðir, á meðan ætlast sé til þess að konur bíði eftir því að karlmenn taki fyrsta skrefið.

Niðurstöðurnar bendi hins vegar til þess að margar konur vilji frekar maka sem geti rætt tilfinningar sínar opinskátt, sýni þörfum þeirra virðingu og leggi sitt af mörkum til sambands sem báðir aðilar njóta góðs af.

Ekki kemur fram í umfjöllun New York Post hversu margir tóku þátt í könnuninni eða hvernig þátttakendur voru valdir. Því er óljóst hversu vel niðurstöðurnar endurspegla viðhorf kvenna almennt.