Bandaríski gamanmyndaleikarinn Jon Lovitz hefur svarað ásökunum Crystal Harris, ekkju Playboy-stofnandans Hugh Hefner, um að hann hafi verið einn mesti perrinn sem sótti veislur í hinni frægu Playboy-höll. Lovitz virðist þó ekki láta ummælin á sig fá og segir það alltaf hrós að vera kallaður númer eitt.
Crystal Harris, sem var gift Hugh Hefner frá árinu 2012 þar til hann lést árið 2017, lét ýmislegt flakka um Lovitz í nýlegum þætti hlaðvarpsins Lisa Guerrero Unleashed á þriðjudag.
Í hlaðvarpinu sagði Harris að Lovitz hefði verið tíður gestur í Playboy-höllinni á árum áður og að hann hefði verið sérstaklega upptekinn af því að horfa á konurnar sem þangað komu.
„Hann var alltaf þarna. Hann var þessi sem lá á gægjum,“ sagði Harris og lýsti því hvernig Lovitz hefði horft á konurnar þegar þær gengu inn í höllina.
„Augun á honum fylgdu þeim frá toppi til táar, öllum konunum sem gengu inn um dyrnar. Ég man eftir honum í hvert einasta skipti sem eitthvað var í gangi, í hverri einustu veislu.“
„Það er hrós að vera númer eitt“
Lovitz var spurður út í ummælin á Instagram.
„Í hvert skipti sem einhver segir að ég sé númer eitt, þá tek ég því sem hrósi,“ segir hann. Lovitz vildi að öðru leyti ekki ræða ásakanirnar en notaði tækifærið til að minnast Hefners með hlýhug.
„Hugh Hefner var einn yndislegasti og örlátasti maður sem ég hef nokkurn tíma kynnst og allir vinir hans vita það. Það er allt sem ég hef um þetta að segja.“
Deilurnar hófust á Instagram
Ummæli Harris eru nýjasti kaflinn í deilum hennar og Lovitz, sem hófust á samfélagsmiðlum í sumar.
Í júlí birti Harris færslu á Instagram þar sem hún sagðist sjá eftir því að hafa gifst Hefner, sem var 60 árum eldri en hún.
„Ég sé eftir öllum árunum sem ég eyddi í að gera lítið úr sjálfri mér svo að heimur hans gæti orðið stærri. Ég sé eftir því að hafa lært að þegja þegar ég hefði getað talað,“ skrifaði hún meðal annars.
„Ég sé eftir því að það tók mig svona langan tíma að átta mig á því hvað var í raun og veru að gerast. Það tók mörg ár.“
Lovitz, sem var gestur í brúðkaupi Harris og Hefners árið 2012, brást illa við þessum ummælum og skrifaði gagnrýna athugasemd við færsluna.
„Sérðu eftir húsinu sem hann keypti handa þér til að búa í eftir dauða sinn? Og að hafa haldið peningunum þegar þú seldir það?“ spurði Lovitz.
Hann hélt áfram og spurði hvort Harris sæi einnig eftir öllum heimsóknum móður sinnar í Playboy-höllina og öllu því sem Hefner hefði gert fyrir hana.
„Og sérðu eftir því að hafa yfirgefið hann og síðan komið aftur til að giftast honum?“
Í hlaðvarpsviðtalinu rifjaði Harris upp þessi orðaskipti og sagði að fjöldi kvenna hefði komið henni til varnar og ráðist harkalega gegn Lovitz á samfélagsmiðlum. Hann væri síðasti maðurinn sem ætti að gagnrýna hana.
„Jon Lovitz, þú varst viðskiptavinur númer eitt í Playboy-höllinni. Þú varst einn mesti perrinn sem kom þangað. Sestu niður!“