Fókus

Kom upp um aukaverkun af ólöglegu þyngdartapslyfi - Þveröfugt við það sem notendur vilja

Mynd
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd/Pexels

Undanfarið hefur peptíðlyfið Reta eða Retatrútíð verið sérstaklega áberandi í umræðunni. Það er mjög auðvelt að finna söluaðila, verðlista og umsagnir, þrátt fyrir að um sé að ræða ólöglegt lyf sem hefur ekki verið samþykkt af lyfjayfirvöldum, hvorki hérlendis né erlendis.

Yfirvöld og heilbrigðisstarfsfólk hafa varað við notkun ólöglegra peptíða en eins og DV fjallaði um í september er hættulega auðvelt að nálgast lyfið hérlendis.

Sjá einnig: Hættulega auðvelt að nálgast ólögleg þyngdartapslyf á Íslandi – „Ég skal adda þér inn í grúbbu“

Það er vert að taka fram að þegar talað er um „Retatrutide“ og fólk segist vera á „Reta“ þá er lyfið enn bara á tilraunastigi og hefur ekki fengið markaðsleyfi frá bandarísku lyfjastofnuninni, FDA, eða öðrum lyfjayfirvöldum. Eina leiðin til að nálgast raunverulegt Reta er í gegnum klínískar rannsóknir. Ólöglegu lyfin sem eru til sölu eru seld sem „retatrutide“, en ekki er hægt að tryggja að þau innihaldi rétt efni eða magn, hvað þá gæði efnisins. Lyfjastofnun Íslands hefur varað við notkun þeirra.

Nýlega framkvæmdi rannsóknarteymi háskóla í Pennsylvaníu áhugaverða rannsókn þar sem það notaði gervigreind til að fara yfir um 150 þúsund færslur frá 40 þúsund notendum á Reddit þar sem Retatrútíð er rætt. Gervigreindin tók saman hvaða aukaverkunum notendur kvörtuðu yfir og kom það rannsakendum á óvart en helstu aukaverkanirnar voru ekki þær sem var búist við en algengustu aukaverkanir þyngdartapslyfja eru meltingartengdar.

Gervigreindin gerði rannsakendum kleift að vinna úr miklu magni texta og finna mynstur í lýsingum fólks á einkennum og upplifun sinni. Meðal þess sem vakti athygli var að aukin matarlyst var algengt einkenni, sem er þá þveröfugt við það sem notendur eru að leitast eftir.

Önnur einkenni voru svefntruflanir, hraðari hjartsláttur og vöðvatengd einkenni.

Rannsakendur segja þessar niðurstöður ekki sanna eitthvað en gefi til kynna að þetta sé eitthvað sem þurfi að rannsaka betur.

Hægt er að lesa nánar um rannsóknina á vef Science Daily.