Framhjáhaldsskandall skekur YouTube-samfélagið þessa dagana. Hila Klein, einn þáttastjórnandi hlaðvarpsins H3, varpaði fram sprengju á Instagram í vikunni og sakaði eiginmann sinn, Ethan Klein, um að hafa haldið framhjá sér. Hávær orðrómur er á kreiki um að elskhuginn sé talsvert yngri starfsmaður þeirra, Tamara Joseph.
H3 Podcast er bandarískt hlaðvarp sem hefur um árabil verið áberandi í umræðunni á samfélagsmiðlum, ekki síst vegna umdeildra ummæla og athafna þáttastjórnandans Ethans Klein.
Ethan og Hila kynntust árið 2007, giftust árið 2012 og eiga þrjá syni.
Þau stofnuðu hlaðvarpið árið 2016 en stofnuðu YouTube-rásina H3H3 Productions árið 2011. Þeim tókst að byggja öflugt samfélagsmiðlaveldi og þar að auki stofnuðu þau fatamerkið Teddy Fresh og snyrtivörumerkið Teddy Glow.
Hvað gerðist?
Þann 22. október var greint frá því á samfélagsmiðlum hlaðvarpsins að það væri komið í ótímabundið hlé.
Daginn eftir birti Hila opinbera yfirlýsingu á Instagram-síðu sinni þar sem hún segir Ethan hafa haldið framhjá sér, að hann hafi logið ítrekað að henni og hafi átt í ástarsambandi við aðra konu í allavega sex mánuði.
„Ég er föst í martröð sem ég næ ekki að vakna upp úr. Eiginmaður minn hefur verið að halda framhjá mér. Hann hefur logið að mér ítrekað í marga mánuði. Ég er þreytt á þessum lygum, hér er sannleikurinn,“ sagði Hila.
„Ég fann á mér að það væri eitthvað að. Ég reyndi að spyrja hann spurninga, deila áhyggjum mínum og hvernig mér leið. En hann lét eins og ekkert væri og brást ekkert við. Hlutir sem trufluðu mig héldu áfram að trufla mig og hann gerði ekkert í því.
Þannig ég treysti honum, því ég elskaði hann. Ég hætti að efast um hann og byrjaði að efast um sjálfa mig, eigið innsæi og andlega heilsu.
Ég gómaði hann að lokum í lygi og ég vissi að þarna var ég komin með nóg. En hann hélt áfram að ljúga. „Þetta var bara koss“ breyttist í „þetta var bara andlegt framhjáhald.“ Að lokum viðurkenndi hann loksins að hann hefði verið að halda framhjá mér í sex mánuði og það er örugglega fullt fleira sem ég veit ekki.
Svikin eru ólýsanleg. Manneskjan sem ég elskaði og treysti í 20 ár hvarf yfir nóttu.“
Hila sagðist ekki vita hvað framtíðin bæri í skauti sér. „Ég er bara að reyna að lifa af, hugsa um sjálfa mig og börnin mín.“
Starfsfólkið stendur með Hilu
Það eru þó nokkrir starfsmenn sem koma að hlaðvarpinu og birtu þeir sameiginlega yfirlýsingu þar sem þeir sögðust standa með Hilu.
Ethan gaf einnig út yfirlýsingu þar sem hann sagðist vera að vinna að því að losa sig við eignarhluti sína og fjárhagslega hagsmuni í H3, Teddy Fresh, Teddy Glow og öðrum sameiginlegum verkefnum þeirra. Sagðist hann vilja tryggja að aðdáendur gætu áfram stutt Hilu og starfsfólkið án þess að hann myndi hagnast á því.
Skandallinn vindur upp á sig
Eins og fyrr segir er verulega hávær orðrómur á kreiki um að konan sem Ethan hélt framhjá sé Tamara Joseph, sem gekk til liðs við H3 sem starfsnemi vorið 2025. Hún var áður mikill aðdáandi þáttarins og benda netverjar á valdajafnvægið á milli þeirra. Ekki nóg með að hún hafi verið mikill aðdáandi Ethan, þá var hann líka yfirmaður hennar og talsvert eldri í þokkabót.
Myndbandsklippur úr þáttunum af samskiptum Ethan og Tamöru hafa gengið eins og eldur í sinu um netheima og skiptast netverjar á því að greina hvert smáatriði.
Það er þó vert að taka fram að þessi kjaftasaga er bara kjaftasaga, það hefur enginn frá hlaðvarpinu stigið fram og hvorki staðfest né neitað fyrir hana. Hila hefur ekki tjáð sig meira um málið að svo stöddu.