Fókus

Dóttir sálfræðings spurði hann mikilvægrar spurningar

Mynd
Mynd/Pexels/TikTok

Bandaríski sálmeðferðarfræðingurinn og rithöfundurinn Rob Stanley birti myndband af sér og dóttur sinni ræða um hamingju á TikTok.

Hún spurði: „Hvaða lífsstílsvenju finnst þér eins og allir ættu að tileinka sér?“

„Ég er alls ekki að hugsa praktískt […] Ég er að hugsa um það sem ég geri mikið með skjólstæðingum mínum. Og þetta er aðferð sem er byggð á rannsóknum,“ segir Rob.

„Ég reyni að kenna fólki „jákvæða eftirvæntingu“. Það sem ég á við með því er að heilinn okkar bregst ótrúlega vel við því þegar okkur byrjar að hlakka til. Við getum þjálfað heilann okkar, þannig séð, í að tileinka sér þá venju að hlakka til einhvers.“

Rob segir að þetta eigi við um stóra hluti eins og einhverja viðburði eða jafnvel bara heitan kaffibolla fyrir vinnu, hitta vinkonu og svo framvegis.

„Í mínu starfi hef ég tekið eftir því að fólk sem á erfitt með hamingju eða almenna lífsánægju á gjarnan erfitt með að hlakka til,“ segir hann.

Rob segir að hann byrji oftast á því að spyrja fólk: „Þegar þú vaknar á morgun, hvað er eitthvað eitt sem þú hlakkar til að gera?“ Fólk horfir á mig og segir: „Engan skapaðan hlut.“

Rob segir að með þessu svari sé fólk að sýna hugarfarið sitt en góðu fréttirnar eru að það er hægt að vinna í þessu.

„Ég vil ekki kalla þetta einfalt, en þetta er ekki flókið. Við getum öll tileinkað okkur jákvæðara hugarfar.“