Leikkonan Hayden Panettiere fannst látin í Greenville í Suður-Karólínu þann 16. ágúst sl. Samkvæmt skýrslu dánardómstjóra lést hún af slysförum vegna fentanýls. Fleiri efni fundust í líkama leikkonunnar, þeirra á meðal kvíðalyfið alprazólam, vöðvaslakandi lyf og geðlyfið quetiapine sem er líka notað sem svefnlyf. Hún var rétt tæplega 37 ára gömul. Það voru kærasti hennar, Brian Hickerson, og bróðir hans sem komu að henni meðvitundarlausri í íbúð sem þau höfðu á leigu.
Nú hefur símtal í Neyðarlínuna varpað nýju ljósi á harmleikinn, en ABC-fréttastofan hefur fengið símtalið afhent á grundvelli bandarísku upplýsingalaganna. Af símtalinu má ráða að það var bróðir Brians, Zach, sem hringdi í viðbragðsaðila. ABC tekur fram að vegna persónuverndarlaga hafi yfirvöld ekki geta staðfest að hér sé um símtal vegna leikkonunnar að ræða eða að það hafi verið bróðirinn sem hringdi, en tímasetningin og heimilisfangið koma heim og saman við harmleikinn.
„Eftir messu gekk ég inn í íbúð bróður míns og kærustu hans, og hann vaknaði en konan hans er meðvitundarlaus,“ sagði Zach í upptökunni sem er um sjö mínútur að lengd.
Starfsmaður Neyðarlínunnar spyr hvort leikkonan andi.
„Nei, ég held ekki“ svarar Zach.
Á upptökunni má eins heyra Zach segja í miklu uppnámi: „Guð minn góður, guð minn góður – á maður að gera endurlífgun eða eitthvað?“
Starfsmaðurinn leiðbeinir Zach og biður hann um að velta leikkonunni á bakið, passa að ekkert sé undir höfði hennar, veita öndunarhjálp og hefja svo hjartahnoð. Hann þurfi að hnoða og veita öndunarhjálp til skiptis þar til sjúkrabíllinn komi á vettvang.
Þó að dánarstjóri hafi úrskurðað að leikkonan hafi látist af slysförum er málið enn til rannsóknar hjá bæði lögreglu og fíkniefnaeftirlitinu. Talið er að ofskömmtunina megi rekja til einnar pillu af verkjalyfinu oxycodone sem búið var að bæta fentanýli við.
Nú er ljóst að Brian var á staðnum þegar Hayden lést, en af símtalinu má ráða að Zach hafi verið sofandi við hlið leikkonunnar þegar hún lést. Þetta er í samræmi við viðtal TMZ við Zach í ágúst en þar lýsti hann atvikum svo að hann hefði farið í messu um morguninn og ætlað í hádegismat með Brian og kærustu hans. Bræðurnir höfðu skipst á skilaboðum um morguninn. Eftir messuna náði Zach hvorki í Brian né Panettiere í síma og gerði þá ráð fyrir því að þau hefðu lagt sig á meðan þau biðu eftir honum. Hann fór því að Airbnb-íbúð þeirra til að vekja þau.
„Ég bankaði fast sem greinilega vakti Brian af blundinum sem þau höfðu fengið sér á svefnsófanum í stofunni.“
Bræðurnir hafi svo báðir reynt að vekja leikkonuna og þá áttað sig á því að hún var meðvitundarlaus. Zach hafi þá hringt í Neyðarlínuna á meðan Brian gaf leikkonunni Narcan, sem er notað til að vinna gegn áhrifum ofskömmtunar ópíóíða. Bræðurnir hafi svo saman hafið endurlífgunartilraunir allt þar til sjúkraliðarnir komu.
Eins má heyra í Brian í bakgrunni símtalsins og ljóst að bræðurnir voru báðir í miklu uppnámi þar sem þeir grátbáðu viðbragðsaðila um að flýta sér og segja þeim hvað þeir ættu að gera á meðan.
Brian og Panettiere höfðu átt í sundur-og-saman sambandi undanfarin átta ár. Þegar leikkonan gaf út endurminningar sínar í maí á þessu ári voru þau ekki saman, en í bókinni greindi leikkonan frá því að Brian hefði beitt hana hrottalegu ofbeldi. Leikkonan glímdi við erfitt fæðingarþunglyndi eftir að dóttir hennar og hnefaleikakappans Wladimir Kitschko kom í heiminn árið 2014. Þunglyndið var svo erfitt viðureignar að leikkonan afsalaði sér forsjá dótturinnar sem eftir það ólst upp hjá föður sínum í Úkraínu. Eins hafði hún glímt við fíknisjúkdóm og alkóhólisma.