Fókus

Aðdáendur ekki sáttir við Barbiedúkku í líki Céline Dion

Mynd

Fransk-kanadíska söngkonan Céline Dion hefur verið heiðruð með Barbie-dúkku sem gerð er í hennar líki, í kjölfar sigursæls árs fyrir Céline. Greint var frá dúkkunni á samfélagsmiðlum Barbie á miðvikudag. Dúkkan líkir eftir útliti Céline frá Óskarsverðlaunahátíðinni árið 1998, en þar söng hún lagið My Heart Will Go On úr kvikmyndinni Titanic og hlaut verðlaun fyrir besta frumsamda lagið.

Dúkkan klæðist þröngum, dökkbláum kjól með síðum ermum, háu hálsmáli og löngum slóða. Dúkkan ber einnig silfur-eyrnalokka og hið fræga hálsmen, Hjarta hafsins (e. Heart of the Ocean), úr kvikmyndinni frá 1997. Hárið er sett upp í glæsilegri greiðslu. „Það er mikill heiður að fá að bætast í hópinn í kringum Barbie, með dúkku sem er innblásin af einni þýðingarmestu stundinni á ferli mínum,“ sagði Céline í yfirlýsingu. „Ég vona að þessi dúkka hvetji alla til að tjá sig af öryggi, elta drauma sína og trúa á mátt eigin raddar.“

Þótt dúkkunni svipi til útlits söngkonunnar frá árinu 1998, voru margir aðdáendur hennar ekki sérlega ánægðir: „Fyrirgefið, en hún líkist ekki okkar Céline,“ skrifaði einn aðdáandi á samfélagsmiðlum, en annar bætti við: „Andlitið... ég veit kki.“ Sá þriðji tók undir: „Þetta er ekki Céline,“ og enn annar spurði: „Hver ​​er þetta?“

Mynd
Mynd

Endurkoma Céline Dion

Dúkkan kemur á markað nokkrum vikum eftir að Céline sneri aftur á svið, í fyrsta sinn síðan hún kom fram við opnunarhátíð Ólympíuleikanna í París árið 2024. Hún hefur í nokkur ár glímt við sjaldgæfan taugakerfissjálfsofnæmissjúkdóm sem kallast „stiff person“-heilkenni, og lagt hart að sér til að verða aftur fær um að koma fram.

„Ég hafði lofað sjálfri mér að gráta ekki,“ sagði hún við aðdáendur sína á fyrstu tónleikunum í tónleikaröð sinni í París þann 12. september. „En ég er svo glöð að sjá ykkur öll. Ég saknaði ykkar. Ég ætla að syngja fyrir ykkur án þess að gráta. Nú erum við hér. Ég stend á sviði í þessari borg sem ég elska svo heitt, þökk sé stuðningi ykkar og ást,“ hélt hún áfram.

Hvað er stiff person-heilkenni?

Céline, sem er þriggja barna móðir, greindist með stiff person-heilkenni í ágúst 2022 og neyddist til að aflýsa tónleikum á ferðalagi sínu á meðan hún var að ná sér. Einkenni heilkennisins geta meðal annars verið vöðvastífleiki, sársaukafullir vöðvakrampar og aukið næmi. Céline veitti innsýn í daglegt líf sitt árið 2024, en hún vann þá með sjúkraþjálfurum og raddþjálfurum til að geta snúið aftur á svið.

„Þetta er eins og einhver sé að kyrkja mann. Eins og einhver sé að þrýsta á barkakýlið eða koksvæðið,“ sagði hún í þættinum Today. „Því miður hafa þessir krampar áhrif á alla þætti daglegs lífs míns... stundum valda þeir erfiðleikum þegar ég geng og koma í veg fyrir að ég geti notað raddböndin til að syngja eins og ég er vön. Það eina sem ég kann er að syngja,“ bætti hún við. „Það er það sem ég hef gert alla ævi. Og það er það sem mér þykir skemmtilegast að gera.“