Símon Birgisson, handritahöfundur og fyrrverandi blaðamaður, var ekki par hrifinn af leikritinu Djöflar í Borgarleikhúsinu. Leikritið er úr smiðju sænska leikskáldsins Lars Norén.
Með hlutverk fara Hilmir Snær Guðnason, Vala Kristín Eiríksdóttir, Íris Tanja Flygenring og Haraldur Ari Stefánsson.
Símon skrifar gagnrýni um verkið á Vísi og gefur því tvær af fimm stjörnum. Hann segir að sýningin sé langdregin og að leikstjórinn virðist upptekinn af því að hafa leikarana fáklædda.
Símon segir að það sé honum ráðgáta af hverju Djöflar hafi orðið fyrir valinu af verkum Lars Norén og honum þyki uppsetning Stefáns ekki tilkomumikil.
„Stefán Jónsson ákveður í þessari uppsetningu að setja í fimmta gír. Hann stígur pedalann í botn alveg frá fyrstu senunni sem er eins konar erótískt dansatriði þar sem Vala Kristín vaggar sér fáklædd í kynlífsrólu við tónlist Rosalíu. Það eru ekki margar mínútur liðnar af uppsetningunni þegar allar spjarir eru horfnar og Frank hefur hálfpartinn nauðgað Katarínu með höndunum.
Vandinn við svona ágenga byrjun er að Stefáni gengur illa að toppa sig í hamaganginum þegar líður á verkið. Skortur á samkennd er tilfinningin sem leitaði einna helst á mig í þessari uppsetningu. Manni er gjörsamlega sama um þetta furðulega fólk sem gerir ekkert annað en að hreyta ónotum, lemja og berja hvort annað.“
Símon segir að hugsanlega hafi leikritið verið sjokkerandi á níunda áratugnum þegar það var fyrst frumsýnt í Svíþjóð. „En hvers vegna að grafa þetta upp og hrella okkur Íslendinga með því mörgum áratugum síðar?“
Gefur Hilmi Snæ falleinkunn
Símon hefur ýmislegt út á leikarana að setja og gefur Hilmi Snæ falleinkunn. „Ég skildi samt minna í því hvernig var valið í hlutverk. Mér fannst Hilmir Snær og Vala Kristín ekki passa í hlutverk Katarínu og Franks [...] Því miður verð ég svo að gefa Hilmi Snæ sjálfum falleinkunn. Hann er frábær leikari og hefur verið í talsverðu framboði síðustu leikár. Mér fannst hann ögra sjálfum sér og sýna manni hvers hann er megnugur bæði í Ketti á heitu blikkþaki, Óresteiu og Hamlet (þar fékk hann líka fínan mótleik frá Sólveigu Arnarsdóttur). En í þessu verki stígur hann aldrei út fyrir þægindarammann, maður hefur séð þetta allt áður, taktana og raddbeitinguna. Stundum fannst mér ég vera að horfa á Hilmi Snæ leika Hilmi Snæ. Hann getur gert miklu betur.“
Símon tekur fram að Vala hafi vissulega lagt sig fram en þurfi „að vinna meira í tækninni ef hún ætlar sér hlutverk af þessari stærðargráðu í framtíðinni.“
„Sjokkera okkur með brjóstum og blóði“
Símon hrósar þó lokakaflanum og segir hann minna á költklassíkina The Big Lebowski.
„Því miður týnast öll þau fínu blæbrigði sem eflaust er að finna í leikritinu í uppsetningu sem tekur sig allt of alvarlega og leggur áherslu á að sjokkera okkur með brjóstum og blóði. Ef tilgangurinn var að kynna Lars Norén fyrir nýrri kynslóð leikhúsfólks á Íslandi held ég að það hljóti að vera betri verk eftir hann til þess fallin en Djöflar. En svo er spurning hvort upplifun manns á verkinu mótist af lélegu leikaravali, slappri frammistöðu aðalleikaranna og algjörum skorti á fínni blæbrigðum í leikstjórn,“ segir Símon.