Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjórnunarlyfi. En hafið þið heyrt um Ozempic-ömmur? Líklega ekki, en það mun þó vera svo, ef marka má umfjöllun Harpers Bazaar, að lyfið sé farið að valda óskunda í samskiptum kynslóðanna, þá einkum á milli mæðgna.
Miðillinn segir frá Natalie, sem er dulnefni konu á fertugsaldri sem eignaðist dóttur á síðasta ári. Á meðan Natalie var ólétt hafði móðir hennar uppgötvað þyngdarstjórnunarlyf og þannig loksins tekist að losa sig við þrálát aukakíló sem höfðu háð henni áratugum saman. Þegar móðir Natalie kom í heimsókn til að hitta ömmubarnið komst byrjaði hún strax að hvetja dóttur sína til að fara á Ozempic til að losna við meðgöngukílóin. Natalie hafði engan áhuga en móðir hennar gafst ekki upp. Natalie varð svo allri lokið þegar móðir hennar benti á þriggja mánaða barnið og hvatti Natalie til að slaka á í brjóstagjöfinni.
„Ég held hún sé að borða yfir sig,“ sagði móðirin. Þá áttaði Natalie sig á því að það er ekki alltaf heilbrigt hugarfar sem fylgir þyngdartapi og þyngdarstjórnunarlyfjum.
Umfjöllun Harpers Baazar varpar ljósi á það hvernig þyngdarstjórnunarlyf geta haft áhrif á fleiri aðila en þá sem neyta þeirra. Móðir sem hefur góða reynslu af lyfinu vill ólm koma fullorðinni dóttur sinni á lyfið til að losa hana við aukakílóin. Dóttirin fær þó fyrst og fremst þau skilaboð að líkami hennar sé ekki í lagi eins og hann er. Hún þurfi að breyta honum.
Sálfræðingur í New York-borg, Zoë Bisbing, vinnur mikið með líkamsmynd í starfi sínu og hún hefur tekið eftir því hjá skjólstæðingum sínum að þyngdarstjórnunarlyf hafa neikvæð áhrif á samskipti mæðgna. Konur á miðjum aldri koma til hennar og kvarta undan mæðrum sínum, á áttræðis- og níræðisaldri, sem eru komnar á þyngdarstjórnunarlyf og tala ekki um annað.
„Ég hef heyrt frá mörgum konum sem segja: Jebb, ömmurnar eru komnar á þetta og hætta ekki að tala um það.“
Hún heyrir einnig frá yngra fólki, fólki sem er að stíga sín fyrstu skref inn í fullorðinsárin, en þau upplifa mörg mikinn þrýsting um að fara á lyfin frá foreldrum sínum sem jafnvel bjóðast til að borga þau. Þarna á það sama við og áður, foreldrarnir eru að senda skilaboð um að barn þeirra þurfi að breyta líkama sínum.
Sálfræðingurinn veit einnig um dæmi þar sem ungar konur fara á lyfin en halda því viljandi frá mæðrum sínum.
„Þeim finnst eins og það sé eitthvað sem mæður þeirra yrðu ánægðar með, og þær vilja ekki gleðja mæður sínar.“
Miðillinn nefnir annað áhugavert dæmi um áhrifin. Hugsum okkur fjölskyldu, foreldra og þrjú börn þeirra, sem hefur alla tíð verið í yfirþyngd. Þyngdin er orðin sameiginlegur reynsluheimur fjölskyldunnar og ýtir þeim þéttar saman. Þetta er hluti af því hver hún er. Svo fer eitt þeirra á Ozempic og kemst í kjörþyngd. Hinir í fjölskyldunni gætu upplifað þetta sem svik á meðan aðilinn á lyfinu gæti upplifað að hún passi ekki lengur eins vel inn og áður. Sambærilegt geti átt sér stað í ástarsamböndum eða vináttum.
Svo eru það mæðurnar sem vilja ekki senda börnum sínum skilaboð um að líkaminn þeirra þurfi að breytast. Þegar þessar mæður fara á Ozempic vilja þær margar leyna því fyrir börnunum. Þær vilja ekki senda röng skilaboð.
Natalie segist enn vera að reyna að átta sig á þessu öllu saman. Hún er nú að ala upp dóttur í heimi sem tekur örum breytingum, þá einkum kröfur um líkamsgerð. Hún ætlar að gæta þess að dóttir hennar fái það ekki á heilann að þurfa að vera grönn, að hún verði ekki eins og amma hennar er orðin.