Það getur verið freistandi að fá sér eitthvað gott í gogginn áður en haldið er til náða. Ný rannsókn bendir hins vegar til þess að þessi hversdagslegi vani geti haft óæskileg áhrif á heilsuna og meðal annars tengst aukinni hættu á alvarlegum lifrarsjúkdómum.
Í rannsókninni, sem birtist í vísindatímaritinu Clinical Gastroenterology and Hepatology þann 10. október, voru skoðuð gögn um hátt í 200 þúsund einstaklinga úr þremur rannsóknum.
Bandaríski miðillinn People greinir frá niðurstöðunum og vísar meðal annars til umfjöllunar The Independent. Niðurstöðurnar sýndu að þeir sem voru vanir að fá sér eitthvað að borða seint á kvöldin, eftir hefðbundinn kvöldmat eða jafnvel eftir að hafa farið í háttinn, voru í aukinni hættu á að greinast með lifrarsjúkdóma.
Áhættan reyndist 20 til 30 prósentum meiri en hjá þeim sem ekki borðuðu á þessum tíma sólarhringsins.
Lifrin fylgir líkamsklukkunni
Meðal þeirra sjúkdóma sem rannsakendur skoðuðu voru fitulifur og skorpulifur.
Fitulifrarsjúkdómur verður þegar óhófleg fita safnast fyrir í lifrinni. Sjúkdómurinn er mjög algengur og veldur oft engum einkennum, en getur meðal annars lýst sér í þreytu og óþægindum í efri hluta kviðarhols. Í alvarlegum tilfellum getur hann þróast yfir í skorpulifur, þar sem varanlegar skemmdir verða á lifrinni.
Andrew W. McHill, dósent við Oregon Health and Science University og einn höfunda rannsóknarinnar, segir niðurstöðurnar undirstrika hversu mikil áhrif innri líkamsklukka okkar hefur á heilsuna.
„Við sjáum aftur og aftur að tímasetning hegðunar okkar, hvort sem um er að ræða svefn, mataræði eða hreyfingu, skiptir verulegu máli,“ segir hann.
McHill bendir á að þegar fólk borðar á þeim tíma sem líkaminn er að undirbúa sig fyrir svefn geti það dregið úr getu hans til að vinna úr fæðunni.
Slíkt geti til lengri tíma stuðlað að offitu, sykursýki og, samkvæmt nýju niðurstöðunum, verri lifrarheilsu.
Einföld breyting gæti skipt máli
Robert Wilechansky, aðalhöfundur rannsóknarinnar, segir að markmiðið sé meðal annars að kanna hvort hægt sé að bæta heilsu fólks með því einu að breyta því hvenær það borðar.
„Við vitum að lifrin er mjög nátengd dægursveiflu líkamans,“ segir hann.
Hann bendir á að aðeins lítill hluti þeirra sem fá fitulifur þrói með sér alvarlega fylgikvilla á borð við skorpulifur.
Engu að síður telja rannsakendurnir að það geti verið til bóta að láta nokkrar klukkustundir líða frá síðustu máltíð dagsins þar til farið er að sofa.
Rétt er þó að hafa í huga að rannsóknin sýnir tengsl milli þess að borða seint og aukinnar hættu á lifrarsjúkdómum, en staðfestir ekki að kvöldsnarl eitt og sér valdi þeim.