Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.
„Við vorum allir jafnháir nema Ringo Starr var aðeins lægri,“ sagði McCartney í hlaðvarpsþættinum Good Hang with Amy Poehler á miðvikudag. „Og ef maður skoðar myndir, þá erum við allir jafnháir.“
McCartney útskýrði að út frá fyrstu myndbrotum sem deilt hefur verið frá tökum myndanna virðist Paul Mescal, sem leikur hann, „lægri“ en Harris Dickinson, sem fer með hlutverk hins látna John Lennon.
„Sam Mendes er að gera myndina. Ég sagði: ‚Sam, það er eitt sem ég þarf að segja þér. Þú veist, Paul er aðeins minni vexti,‘“ sagði McCartney, sem er 84 ára, í hlaðvarpinu.
„Ég veit ekki hvernig Sam ætlar að leysa þetta,“ hélt hann áfram um leikstjórann. „Hann sendi mér mynd frá tökunum, þar sem þeir eru að ganga yfir gangbrautina við Abbey Road, og persónan Paul er greinilega minni vexti. Ég sendi honum skilaboð: ‚Sam! Minni? Ekki gera þetta! Þú sagðist ekki ætla að gera þetta.‘“
Í svari sínu hélt Mendes því fram, að sögn McCartney, að þetta sýnilega misræmi í hæð stafaði eingöngu af „skrefalaginu“. „Og svo sendi hann mér aðra mynd þar sem þeir eru jafnháir,“ sagði McCartney.
McCartney minntist þess að hafa verið ósáttur með svipuðum hætti við kvikmyndina Nowhere Boy frá árinu 2009, eftir Sam Taylor-Johnson, þar sem Thomas Brodie-Sangster fór með hlutverk McCartney og Aaron Taylor-Johnson lék Lennon.
„Persónan John, sem hún giftist síðar, Aaron, hann er stærri en ég í myndinni,“ útskýrði McCartney fyrir Poehler. „Persónan mín er svolítið vesælleg. Minni en John. John skellir mér í gólfið. Og manni finnst bara: Sam, þetta er ekki satt!“
McCartney sagði að „eina skýring“ Sam á þessum stærðarmun á þeim tíma hefði verið sú að hún væri að gera kvikmynd, ekki heimildarmynd.
„Og ég hugsaði með mér: Jæja, mér líkar ekki sú skýring,“ rifjaði McCartney upp og tók fram að hann hefði ekkert getað gert í málinu þar sem myndin var þegar fullgerð. „Þarna var ég, litli Paul. John, mikla hetjan, og manni finnst bara: Nei! Þetta er ekki satt,‘“ bætti hann við.
Kvikmyndaverkefni Mendes, The Beatles – A Four-Film Cinematic Event, mun samanstanda af fjórum myndum sem hver um sig fjallar um einn meðlim hinnar vinsælu bresku rokksveitar, en áætlað er að þær verði allar frumsýndar í apríl 2028.
Mescal (30) mun leika McCartney, Dickinson (30) mun leika Lennon, Barry Keoghan (33) mun leika Starr og Joseph Quinn (32) mun leika Harrison. Meðal annarra leikara sem hafa verið staðfestir eru Saoirse Ronan sem Linda McCartney, Anna Sawai sem Yoko Ono, Harry Lloyd sem George Martin og James Norton sem Brian Epstein.
Í viðtali við IndieWire á síðasta ári staðfesti Mescal að hann hefði hitt McCartney til að undirbúa sig fyrir myndina og lýsti McCartney sem „óvenjulegum manni“.
„Það er ótrúlegt til þess að hugsa að ég hafi varið tíma með þessum manni, hvað þá að ég eigi eftir að leika hann,“ sagði mescal og staðfesti jafnframt að hann muni sjá um sönginn sjálfur. Í maí sagði McCartney við BBC að hann hefði kennt Mescal að spila á gítar.
„Hann kom inn á þessa skrifstofu og ég hugsaði með mér: Jæja, ég skal sýna honum hvernig á að spila Blackbird,“ sagði McCartney. „Ég tók því gítarinn og byrjaði að spila... og hann spilaði nákvæmlega með! Ég held að hann hafi kunnað lagið betur en ég! Það var ótrúlegt hversu vel hann hafði kynnt sér málin og hversu mikla þekkingu hann bjó yfir varðandi mig. Þannig að ég hugsaði: Allt í lagi, ég læt þig um þetta.“