Netverjar gera stólpagrín að Mark Zuckerberg, forstjóra Meta, eftir að birt var myndband af honum að smakka Guinness. Virðist honum ekki líka bragðið.
„Mark Zuckerberg að þykjast njóta Guinness er nýja uppáhalds efnið mitt,“ segir einn netverji í athugasemd við myndband sem nú gengur með netheima.
Um er að ræða viðtal við Zuckerberg og Alexander Wang, yfirmann gervigreindarmála hjá Meta, í hlaðvarpinu Cheeky Pint sem maður að nafni John Collison stýrir. En þar er spjallað við fólk á meðan sopinn er bjór, oftast hinn þekkti írski bjór Guinness.
En Guinness er ekki allra, eins og myndbandið sýnir. Þar má sjá Zuckerberg taka sopa og bersýnilega finnst hann ekki ljúfur. Fær hann augljóslega mikla klígju af honum. Zuckerberg setur frá sér glasið, ýtir því frá sér og lítur upp í loftið.
„Svona er bara andlitið á mér“
Myndbandið hefur farið í mikla dreifingu á samfélagsmiðlum, þar á meðal miðlum Zuckerbergs sjálfs eins og breska blaðið Metro greinir frá.
„Hlýtur að vín gaur,“ segir einn netverji.
„Gaurinn byggði Meta en Guinness hlýtur að vera hans mesta áskorun til þessa,“ segir annar.
Zuckerberg hefur nýlega fest kaup á fasteign í Írlandi. Hann gæti því átt hættu á að þurfa að smakka dökka ölið aftur.
Zuckerberg sjálfur hefur brugðist við athugasemdum netverja og hafnað því að honum hafi boðið við Guinness glasinu. „Svona er bara andlitið á mér,“ segir hann.