Fókus

Manst þú eftir frægu sexburunum? - Opnar sig um erfiða æsku og ofbeldi

Mynd
Mynd/TLC/Getty Images

Um tíðina réði Gosselin-fjölskyldan ríkjum á sjónvarpsstöðinni TLC. Fjölskyldan samanstóð af foreldrunum Kate og Jon, tvíburastúlkunum Madelyn og Cara, og sexburunum Aaden, Alexis, Collin, Hönnuh, Joel og Leah.

Fjölskyldan kom fram í vinsælu raunveruleikaþáttunum „Jon and Kate Plus 8“. Þættirnir hófu göngu sína árið 2007 og komu út ellefu þáttaraðir yfir tíu ára skeið á sjónvarpsstöðinni TLC. Árið 2009, eftir tvær þáttaraðir, skildu Jon og Kate, en þættirnir héldu áfram undir nafninu: „Kate plus 8.“

Eins og fyrr segir var þetta ein frægasta fjölskylda Bandaríkjanna um tíma, þau voru úti um allt og mættu reglulega í spjallþætti og á aðra viðburði. Fjölskyldan hefur haldið sig frá sviðsljósinu að mestu undanfarinn áratug en hefur ratað á ný í fréttirnar eftir að einn sonurinn, Collin, bar móður sína þungum sökum. 

Mynd
Myndir/Getty Images

Collin var að gefa út sjálfsævisögu þar sem hann opnar sig um æskuna, erfiðleika og ofbeldi.

Collin sakaði fyrst móður sína opinberlega um ofbeldi árið 2024. Hún sakaði hann á móti um að vera andlega veikur og hættulegur.

 

 

@theussun EXCL: Collin Gosselin says mom 'zip-tied him & locked him in basement' #katepluseight ♬ original sound - The US Sun

 

 

 

Bókin heitir In the Shadow of Eight: Surviving the Reality of My Childhood og kom út í gær.

Collin segir fjölskyldulífið hafa verið allt annað en sást í sjónvarpinu. Hann segir að móðir hans hafi bundið hann og læst hann í kjallaranum. Hann var lokaður inni á meðferðarstofnun aðeins ellefu ára gamall í tæplega tvö ár. Hann segir föður sinn hafa bjargað sér úr þessum aðstæðum.

Útilokar ekki að fyrirgefa

Collin ræddi um bókina við E! News og segist ekki útiloka að fyrirgefa móður sinni. Hann sagði að hins vegar þurfi meira en nokkur vel valin orð til að hann geri það. Hann vill að hún axli ábyrgð á því sem hafi gerst og sagði að hegðun hennar þurfi að endurspegla orð hennar.

Collin sagði að það hefði verið erfitt en frelsandi á sama tíma að setjast niður og skrifa sögu sína.

Hann ræddi einnig um systkini sín, en aðeins hann og systir hans, Hannah, hafa búið hjá föður sínum og hafa ekki verið í samskiptum við hin sex systkinin. Hann sagðist óska þess að þau myndu lesa bókina og kynna sér hans hlið, en ekki bara trúa móður sinni.

Hingað til hefur Kate ekki tjáð sig um bók sonarins, en eins og fyrr segir hefur hún hafnað ásökunum hans um ofbeldi.