Fókus

Líður stórkostlega andlega og líkamlega - Litlu breytingarnar sem hún gerði

Mynd
Alison Cork. Myndir/DailyMail

Hin breska Alison Cork léttist um tæp 32 kíló á 18 mánuðum án þess að nota þyngdartapssprautur. Hún útskýrir hvernig henni tókst það í kringum sextugt. Hún breytti ekki bara mataræði sínu heldur mörgum litlum venjum sem saman gerðu gæfumuninn.

Í dag er Alison 62 ára og líður vel, bæði líkamlega og andlega. Hún fer yfir þær litlu breytingar sem hún gerði í grein á Daily Mail.

Byrjaði á mataræðinu

Alison byrjaði á því að breyta mataræðinu. Hún fylgir svokölluðu 80/20 reglunni, sem þýðir að 80 prósent tímans er hún meðvituð um að borða hollt en er sveigjanleg 20 prósent tímans.

Hún byrjaði að borða meira prótín, lítinn sem engan sykur, minna af unnum matvælum, drekka meira vatn og hætti að fá sér snarl eftir kvöldmat.

Alison dró einnig verulega úr áfengisneyslu.

Hreyfing

Alison stundar styrktarþjálfun og pilates en fer líka út að ganga og reynir að ná 10 þúsund skrefum á dag.

Hvíld

Alison segir mikilvægt að taka líka hvíldardaga á milli.

Gufubað

Alison fer reglulega í gufu og reynir að fara nokkrum sinnum í viku.

Svona breyttist mataræðið hennar:

Morgunmatur

Áður: croissaint eða súkkulaðibrauð

Núna: Próteinpönnukökur, egg með parmesan

Hádegismatur

Áður: Samlokur eða tilbúnar máltíðir hitaðar í örbylgjuofni

Núna: Kjöt, kjúklingur eða rækjur með grænmeti

Kvöldmatur

Áður: Tilbúinn réttur, tvö til þrjú glös af víni og eftirréttur

Núna: Heimagerður villibráðarréttur eða súpa, ávextir og yfirleitt ekki áfengi

Millibiti

Áður: Sælgæti, kökur og súkkulaðistykki

Núna: Döðlur, dökkt súkkulaði eða grískt jógúrt með berjum

Alison drekkur líka núna um 2-3 lítra af vatni á dag.