Breski bloggarinn Charlie Anderson-Read er látin 41 árs að aldri eftir erfiða baráttu við krabbamein. Frá þessu greindi Charlie sjálf í myndbandi til fylgjenda sinna.
Charlie greindist með briskrabbamein fyrir þremur árum, þá 38 ára gömul, og síðar greindist hún með krabbamein í gallgöngum. Læknar töldu við fyrstu greiningu að Charlie ætti aðeins fáeinar vikur eftir ólifaðar, en hún barðist engu að síður í þrjú ár. Hún deildi baráttu sinni opinskátt á samfélagsmiðlum og þann 10. október tilkynnti hún eigið andlát í myndbandi sem hún tók upp áður en hún lést. Hún lætur eftir sig eiginkonuna Louise og fjögurra ára dóttur, Florence.
„Ef þú ert að horfa á þetta myndband þá er ég, því miður, ekki lengur hér. Nei, ég er ekki að deila þessu að handan, einhver tók það góðfúslega að sér að deila þessu fyrir mína hönd. Ég vildi bara segja takk við ykkur öll. Öll skilaboðin og fallegu kveðjurnar frá ykkur hafa virkilega hjálpað mér í gegnum það sem hefur verið mjög erfiður tími. Mörg ykkar hafa gefið peninga til að styðja Louise og Florence eftir að ég er farin og fyrir það verð ég ykkur ævinlega þakklát.“
Charlie sagðist vona að myndbönd hennar hafi náð að hjálpa einhverjum sem er að ganga í gegnum erfiðleika á borð við hennar. Allir sem hún hafi hitt fyrir í baráttunni hafi reynst henni vel.
„Þetta hefur sýnt mér hvað það er mikið af góðmennsku í þessum heimi. Ég vona að þið getið öll séð það núna. Og allir sjúkdómar, ólæknandi eða ekki, eru algjörlega hræðilegir og ég get rétt svo ímyndað mér hversu erfitt það hefur verið fyrir vini mína, fjölskyldu og fólk sem ég hef aldrei hitt að fylgjast með þessu ferðalagi mínu.“
Hún sagðist ekki kveðja með eftirsjá, þó hún hafi vissulega viljað vera hér lengur.
„Ég er svo þakklát fyrir lífið sem ég lifði. Ég sé ekki eftir neinu, engan veginn. Það eina sem ég hefði viljað er að fá að vera lengur með fjölskyldu minni og fá að sjá Florence vaxa úr grasi. Það eru hlutir sem ég vildi að ég hefði viljað vera viðstödd og margt sem ég mun missa af. En það er svo margt sem ég hef fengið að upplifa og ég hef verið svo heppin þessi tvö og hálft ár sem ég fékk aukalega.“
Skilaboðunum lauk hún svo með lokakveðju: „Svo, í síðasta skiptið, farið vel með ykkur. Ég óska ykkur alls hins besta. Haldið áfram að berjast og ekki leyfa fráfalli mínu að hafa neikvæð áhrif á fólk eða ykkur sjálf. Haldið áfram að berjast, þið getið þetta.“
Eins og áður segir fjallaði Charlie opinskátt um veikindi sín. Í desember árið 2023 deildi hún einkennum krabbameinsins sem hún hafði ekki áttað sig á að væru einkenni í fyrstu. Eftir erfiðan dag í vinnunni missti hún matarlystina en fannst það ekkert óvenjulegt. Hún hafði alltaf misst matarlyst þegar hún var stressuð en svo jafnaði það sig. Síðan fann hún fyrir smá þykkildi á vinstri síðu sinni, rétt fyrir neðan lungun, en hélt að þetta væri bara harður vöðvi. Eftir að hún leitaði til læknis og á meðan hún beið eftir niðurstöðum rannsókna fór hún að finna fyrir stingandi sársauka í sömu síðunni. Hún sannfærði þó sjálfa sig um að það væri líka tengt streitu. Síðan fór hún að finna fyrir ofsaþreytu en tengdi það enn og aftur við streituna.
Briskrabbamein er oft kallað hljóðláti banabitinn þar sem fólk finnur gjarnan ekki fyrir einkennum fyrr en það er um seinan. Sumir gætu þó tekið eftir gulu, þreytu, lystarleysi, bakverkjum, ógleði, uppköstum og blóðtöppum.