Fókus

Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set

Mynd

„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, mannauðsstjóri hjá Elju. Hann hefur nú sett íbúð sína í Bláhömrum í Grafarvogi á sölu. Árni úr Garði en hefur verið búsettur í Reykjavík um árabil og starfað þar. 

Mynd

Nokkrir mánuðir eru síðan Árni fór að birta myndbönd á Facebook og TikTok. Í myndböndunum tekur Árni aulahúmorinn á ýmis þjóðfélagsmál og bendir á vankantana sem eru víða í vinnubrögðum borgarstjórnar og Alþingis.

Í myndböndunum kallar Árni sig Uglu Tré, sem er greinilega ekkert ómögulegt og óviðkomandi og greinilega margra starfsmanna maki. Ómetanlegur aðstoðarmaður sem aldrei sést þó í mynd eða hljóði er svo Gógó. 

Íbúðin er 64,6 fm tveggja herbergja íbúð á fimmtu hæð í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 1989. Íbúðin skiptist í stofu og borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi, og geymslu innan íbúðar. Svalir eru út frá stofu.

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd