Fókus

Ofurmennið gerði neyðarleg mistök og sýndi aðeins of mikið af sjálfum sér - „Kom fyrir útsýnið“

Mynd

Leikarinn Tom Welling, sem er hvað þekktastur fyrir að fara með hlutverk ofurmennisins í þáttunum Smallville, varð fyrir því neyðarlega atviki á dögunum að bera óvart á sér kynfærin á samfélagsmiðlum. Hann birti um helgina mynd á samfélagsmiðlum til að sýna útsýnið frá hótelherbergi sínu í New York. Það sem leikarinn fattaði ekki er að í glugganum mátti sjá spegilmynd hans, en hann var kviknakinn þegar hann tók myndina.

Eftir að hann uppgötvaði mistökin eyddi leikarinn myndinni og virðist sem betur fer taka þessu öllu með húmorinn að vopni. Einn netverji birti myndband á Instagram þar sem hann er að taka mynd í New York-borg, en þegar hann skoðar myndina virðist hann fá áfall.

„Sjónarhorn: Þú ert ferðamaður í New York-borg og sérð Tom Welling standa úti í glugga á hótelherbergi sínu þann 10. október.“

Leikarinn skellti í athugasemd við færsluna og skrifaði: „Kom fyrir útsýnið“.

Eins og flestir vita er erkióvinur ofurmennisins hinn illi Lex Luthor. Það var leikarinn Michael Rosenbaum sem fór með það hlutverk í Smallville. Hann birti að sjálfsögðu færslu þar sem hann gerði grín að fyrrum meðleikara sínum. Á myndbandinu er hann að taka mynd af útsýninu í New York en á glerinu má sjá spegilmynd hans. Rosenbaum gætti þess þó að vera í nærbuxum.

Það tók leikarann um 10 klukkustundir að uppgötva mistökin en í athugasemdum fullvissuðu aðdáendur hann um að hann hefði sko ekkert til að skammast sín fyrir.