Erfið fjölskyldutengsl og draugar fortíðar eru óhjákvæmilega algengt viðfangsefni í skáldskap. Öll förum við í gegnum lífið með mismikið af slíkri byrði og flækjum. Nýlega las ég tvær merkilegar og sársaukafullar skáldsögur um brotnar fjölskyldur.
Önnur er eftir sænska höfundinn Alex Schulman, Dagur í júní, sem kom líklega út síðla sumars. Ég rak augun í hana á búðarborði, tók hana upp, opnaði af handahófi og þar sem greint var frá knattspyrnulandsleik V-Þjóðverja og Skota á HM í Mexíkó árið 1986. Þó að minnið bregðist mér oft á seinni árum man ég vel eftir að hafa horft á þennan leik í sjónvarpi í heimsókn hjá kunningja í München. Ég var þó búinn að gleyma því að leikurinn hefði farið fram á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní, en við lestur bókarinnar kemur smám saman í ljós að tímasetningin er sérstaklega mikilvæg fyrir aðalpersónu bókarinnar, kennarann Viðar, sem er sendur í leyfi vegna rannsóknar á ofbeldi hans í garð nemanda.
Það var ekki bara þessi gamli landsleikur sem fangaði athyglina þegar ég opnaði bókina. Það er einhver ákefð, spenna og eftirvænting í textanum hvar sem drepið er niður í bókinni. Textinn er lipur og vel flæðandi en þýðandi er Sunna Dís Másdóttir.
Atvikið sem varðar meint brot kennarans Viðars þyrlar upp óuppgerðum og sársaukafullum minningum hans úr barnæsku. En ekki bara minningum, það rennur smám saman upp fyrir honum að dagurinn 17. júní árið 1986 hefur fólgna í sér ráðgátu sem þarf að ráða og sálarheill hans er að veði.
Þennan dag dvaldist fjölskyldan, foreldrarnir og tvö sysktini, í sumarhúsi. Loft var lævi blandið og óuppgerð mál milli foreldranna hafa mikil áhrif á börnin. Af ókunnum ástæðum getur Viðar hringt í gamla símanúmerið í sumarhúsinu og náð sambandi við fjölskylduna á þessum degi fortíðinni, þar á meðal sjáflan sig sem ungan dreng. Þrátt fyrir þessar yfirnáttúrulegu vendingar virkar sagan alltaf raunsæisleg, sálfræðilegt raunsæisverk um það hvernig barnæskan mótar einstaklinga.
Móðir Viðars er mikill örlagavaldur í lífi hans og þar er dregin upp nöturleg mynd af afar biturri manneskju sem vissulega hefur tilefni til þeirrar beiskju sem gegnsýrir hana.
Þetta er átakanleg saga en um leið grípandi og spennandi.
Ókunnugt fólk er, að mig minnir, þriðja bók Björns Halldórssonar. Ég hef ekki lesið skáldsögu hans, Stol, en smásagnasafnið Smáglæpir lofaði mjög góðu. Sagan lýsir fjölskyldu í sárum vegna dauðsfalls frumburðar hjónanna og smám saman teiknast upp mynd af því hvernig sorgin og áfallið hafa tvístrað fjölskyldunni, í bland við óuppgerða fortíð og leyndarmál.
Sagan tekst á við ofurfirringu nútímans á snjallsímaöld en vekur manni von um að skáldsagan sé ennþá form og miðill sem skipti máli og geti hjálpað okkur til að glöggva okkur á samtímanum og takast á við hann. Sagan er sögð til skiptis frá sjónahóli helstu persóna, þar á meðal er látni sonurinn. Hann er raunar eina persóna bókarinnar sem mér fannst ekki skýr og ég hreinlega veit ekki hvort það er nokkur galli. Kannski er við hæfi að hann sé lesandanum ekki jafn áþreifanlegur og ættingjar hans, en hinar persónurnar eru ljóslifandi og dregnar upp skýrum dráttum. Þar þykir mér eiginkonan og móðirin Vilborg eftirminnilegust, stór og breyskur karakter, uppfull af umhyggju og stjórnsemi sem fara úr böndunum.
Titillinn „Ókunnugt fólk“ er margræður en hlýtur að vekja upp þá tilhugsun að nákomnar manneskjur þekkist ekki alltaf vel þegar að er gáð. Að við séum öll ókunnugt fólk.
Þó sagan sé efnismikil með öllum sínum persónum og hliðarsögum þá er hún ekki tiltakanlega löng. Kaflarnir eru stuttir og frásögnin grípandi. Þetta er þéttur pakki.
Þessa bækur eiga tvennt sameiginlegt, annað er að höfundarnir skrifa um þungbær söguefni sem snerta fjölskyldur og uppvöxt, hitt er að þeir hafa báðir grípandi frásagnartækni og hæfileika til að halda athygli lesandans og fá hann til að fletta áfram. Ég held að á þessum tímum offramboðs af auðmeltri afþreyingu sé mikilvægt að skáldsögur séu aðgengilegar og grípandi. Það á við um þessar tvær sögur.